fbpx
200x200

Árið 2013 kom 8 ára drengur til okkar í ABC skólann í Búrkína Fasó. Það árið byrjaði hann í 1.bekk. Omar varð 13 ára í maí og er í 7. Bekk. Hann hefur staðið sig vel í skólanum og ekki þurft að endurtaka neinn bekk eins og margir þurfa að gera hér.

Omar á sér þann draum að verða hjúkrunarmaður.

Þrátt fyrir mikinn dugnað á Omar á sína erfiðu sögu.  Hann er með alvarlegan sjúkdóm í beinunum. Hann er margsinnis búinn að brotna.  Eitt sinn var Hinrik, forstöðumaður skólans, kallaður út fyrir skólalóðina. Þegar hann kom þangað lá Omar á jörðunni og hafði brotnað. Hinrik vildi að við færum með drenginn á sjúkrahús en kennarinn sem var þar sagði „nei,nei, við verðum að bíða eftir pabba hans sem er á leiðinni“.  Það var gert og honum boðið að við færum með drenginn á sjúkrahúsið en það vildi pabbinn ekki. „Við borgum allan kostnað við það“, sagði Hinrik.  Nei, faðirinn tók drenginn, brotinn í fang sér og bar hann heim.  Hann vill bara meðhöndla Omar með „traditional“ lyfjum.

Þegar Omar brotnar og líður mjög illa kemur hann skiljanlega ekki í skólann og segist stundum ætla að hætta.  Um leið og bráir af honum kemur hann haltrandi í skólann með prik sem hann styðst við.  Fyrir rúmu ári síðan brotnaði hann illa þannig að annar fóturinn virðist ekki hafa gróið.  Nú er hann búinn að fá hjólastól og á því mun auðveldara að ferðast um.

Við erum mjög þakklát og stolt  yfir að hafa þessa hógværu og sterku hetju í skólanum okkar.

Skildu eftir svar