fbpx

ABC í Pakistan Sheikhupura

Pakistan

ABC hóf samstarf við frjálsu félagasamtökin Rasta foundation of Pakistan árið 2018. Rasta hefur starfað í Pakistan frá árinu 2009 og markmið þeirra er að hjálpa múrsteinabörnunum að fá menntun og frelsi.

Skólinn er í héraði sem heitir Sheikhupura, þar sem flestar fjölskyldur eru skuldum vafnar við verksmiðjueigendur. Þar fá börn kennslu í dagskóla frá leikskóla upp í 10. bekk. Læra þau Urdu, ensku, stærðfræði, ljóð og myndlist, félagsfræði, trúabragðafræði, vísindi, landafræði, sögu og tölvukennslu. Í skólanum geta þau klárað ígildi gagnfræðaskólanáms og er námið bæði bóklegt og verklegt. Þessi börn eiga það sameiginlegt að þau hafa ekki fengið neina kennslu á nokkurn hátt áður en þau koma í Rasta skólann.

Rasta Foundation Brick Kiln Slaves School var stofnað 2009 en upphafsmaður starfsins er kristinn prestur, Shamoun Chand. Chand ólst upp í nágrenni múrsteinaverksmiðjanna og sá þörfina hjá þessum óafskipta hópi barna sem voru án réttar og náms. Chand byrjaði í litlu húsnæði með þrjá kennara. Árið 2013 komu sænsk samtök og byggðu nýja skólabyggingu fyrir samtökin sem var vígð 28. nóvember 2013. Skólinn hefur vaxið jafnt og þétt og í dag eru yfir 200 nemendur og 18 kennarar og starfsmenn.

Mikið er lagt upp úr því að nemendur læri um og verði meðvituð um rétt sinn og skyldur í samfélaginu. Markvisst er stuðlað að fræðslu um grunnþarfir barna, barnavernd, barnaþrælkun, mansal, kynjaafnrétti og fleira. Félagsleg vandamál eru mörg í landinu og mikið níðst á réttindum þegna landsins.

Flest börn byrja í forskóla 6 ára. Grunnskólinn er eins og á Íslandi frá 1. bekk upp í 10. bekk en þá taka nemendur samræmd próf og geta farið í áframhaldandi nám ef þeir ná prófunum.

Skólaárið í Pakistan skiptist í þrjár annir.

  • Fyrsta önnin er frá apríl – júní
  • Sumarskóli er frá júní – júlí
  • Önnur önn er frá september – desember
  • Þriðja önnin er frá janúar – mars

Múrsteinabörnin

Hinir bágstöddu eða þeir lágt settu í þjóðfélagsstiganum í Pakistan eiga ekki marga valmöguleika þegar kemur að því að sjá fyrir sér og sínum. Iðulega er um tvo valkosti að ræða, betla á götunum eða þiggja lán frá þeim sem fara fyrir stórum iðnaði í landinu, þ.m.t. múrsteinaverksmiðjum. Þyggi þeir lán bíður þeirra langur og erfiður vinnudagur við að búa til múrsteina úr leir. Yfirleitt skín sólin skært á daginn og fyrir vikið verður leirinn mjög heitur og vinnumenn þurfa að bera múrsteina á milli með berum höndum. Í Sheikhpura héraðinu eru hundruð barna í þrælkunarvinnu og meðferðin á börnunum svo slæm að þeim er ekki heimilt að sækja skóla og vinnudagurinn er alla jafna 16 klukkustundir á dag sex daga vikunnar. Fulltrúar frá Rasta Foundation semja við verksmiðjueigendur þegar tækifæri gefst og borga skuldir verkamannanna og leysa þar með börn þeirra úr ánauð (þrælkunarvinnu). Samtökin bjóða svo upp á skóla fyrir börnin þar sem þau fá menntun, mat, skólabúninga og heilsugæslu. Skólinn er í sama þorpi og verksmiðjurnar og þar sem fjölskyldur barnanna búa. Sumar fjölskyldur búa í litlum múrsteina-kofum og aðrar leigja eitt herbergi af verksmiðjueigendum fyrir alla fjölskylduna.

Óspillta kynslóðin

Það er samróma álit flestra að spilling sé helsta ástæða fátæktar í heiminum. Hugmyndafræðin um „óspillta kynslóð“ hefur verið innleidd víðs vegar í skólum ABC í Asíu og Afríku. Börnunum er kennt markvisst um neikvæðan áhrifamátt og umfang spillingar. Spilling snýst um bjagaðan hugsunarhátt frekar en sókn í peninga og munu komandi kynslóðir alast upp við fræðslu um þessa helstu ástæðu fátæktar og örbirgðar.

Landið
Opinbera nafn Pakistan er “Íslamska lýðveldið Pakistan” og höfuðborgin er Islamabad.

Íbúafjöldi Pakistan er rúmlega 240 milljón manns miðað við tölur frá árinu 2024. Það er fimmta fjölmennasta ríki heims og fjölgar íbúum landsins mjög ört.

Ólæsi er mikið vandamál en það er mismikið milli svæða, allt frá 10% í höfuðborginni og upp í 72% á mörgum dreifbýlissvæðum. Um 13% barna í Pakistan klára ekki grunnskóla. Ólæsi er mikið meðal stúlkna og kvenna. Fátækt er sérstaklega mikil meðal fólks í sveitum landsins. Margar aldir af arðráni í hinum ýmsu myndum hefur skilið íbúana eftir vansæla og bölsýna