Takk fyrir frábæran Vorfagnað

Vorfagnaður ABC fór fram síðastliðinn miðvikudag í frábærum félagsskap. Við viljum þakka öllum sem mættu og fögnuðu með okkur, sem og hinu frábæra listafólki sem skapaði einstaka stemningu. Einnig færum við okkar dýpstu þakkir þeim fyrirtækjum sem studdu viðburðinn með glæsilegum glaðningum í happdrættið og listafólkinu sem gaf okkur stórkostleg listaverk fyrir uppboðið. Við viljum […]
Vorfagnaður ABC barnahjálpar

Miðvikudaginn 23. apríl heldur ABC barnahjálp sinn árlega vorfagnað í Veginum Fríkirkju, Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Í boði verður glæsilegt þriggja rétta veisluhlaðborð og munu eftirfarandi tónlistarmenn stíga á stokk: Stebbi Jak, Kristmundur Axel, Páll Rósinkranz og Aldís en hún er sigurvegari FélKó 2025. Tónlistarstjóri er Emil Hreiðar Björnsson. Veislustjórar verða hjónin Kristín Sif og Stebbi […]
Hvað gerðum við árið 2024

Kæru stuðningsaðilar, Við hjá ABC Barnahjálp viljum þakka ykkur innilega fyrir ómetanlegan stuðning á árinu 2024. Með hjálp ykkar höfum við getað veitt þúsundum barna í Afríku og Asíu tækifæri til menntunar og bjartari framtíðar. Árangurinn er einstakur, og við erum stolt af því sem við höfum náð saman. Hér eru nokkur af þeim mörgu […]
Jólahappdrætti – vannst þú?

Í dag, 30. desember mætti Hjalti Skaale Glúmsson framkvæmdastjóri ABC barnahjálpar ásamt Óskari Steinari Jónssyni verslunarstjóra Nytjamarkaðanna til sýslumanns og drógu í jólahappdrættinu okkar. Við erum afskaplega þakklát og glöð fyrir þann stuðning sem þið sýnið okkur með því að taka þátt og var metþáttaka í ár. Hér má sjá vinningaskrá listaða í miðaröð. Innilega […]
Gleðileg jól

Við hjá ABC barnahjálp viljum óska ykkur gleðilegrar jólahátíðar og friðar á nýju ári. Með dyggum og ómetanlegum stuðningi frá stuðningsaðilum okkar hefur ABC verið gert kleift að starfa ár eftir ár og staðið trúföst að baki þúsundum barna og gefið þeim tækifæri til að mennta sig. Við þökkum samfylgdina og stuðninginn á liðnu ári […]
BERNSKA – ABC barnahjálp X Esther Ýr

Það gleður okkur að kynna skemmtilegt verkefni sem við höfum verið að vinna að síðastliðnar vikur. Í samstarfi við Esther Ýr Óskarsdóttur, ungan og upprennandi listamann, höfum við sett á sölu þetta fallega eftirprent af listaverkinu Bernska. Eftirprentið verður til sölu yfir jólatímann og allur ágóði af sölu þess rennur beint til ABC barnahjálpar. Hagnaðurinn […]
Jólagjafasjóður ABC barnahjálpar

Kæru stuðningsaðilar, Við hjá ABC barnahjálp viljum þakka ykkur ómetanlegan stuðning við starf ABC barnahjálpar í Afríku og Asíu. Með ykkar hjálp og annarra velunnara styður ABC þúsundir barna til náms. Nemendur fara bráðlega í jólafrí og fá þá stuðningsaðilar kort frá þeim. Við viljum benda á að velkomið er að senda börnunum jólakort og […]
Útskrift í klæðskeraskóla í Pakistan

Það gleður okkur að segja frá því að á dögunum var fyrsta útskriftin í klæðsleraskólanum í Pakistan. Þar útskrifuðust 10 ungar konur úr klæðskeranámi, með góðum árangri. Við útskriftarathöfnina var þeim fært viðurkenningarskjal og fengu hver og ein saumavél að gjöf. Stúlkurnar voru mjög ánægðar og þakklátar fyrir tækifærið til að læra þessa iðn. Þær […]
Jólakortin á leið til stuðningsaðila

Nú eru jólakort frá börnunum farin í póst til stuðningsaðila. Í ár eins og áður fer mikill undirbúningur í að senda og voru starfsmenn og sjálfboðaliðar í jólaskapi við þann undirbúning. En í ár var pökkunin með öðruvísi sniði en áður þar sem starfsfólk Össurar kom til okkar að hjálpa. Össur heldur úti starfsemi sem […]
Covid19 hefur mikil áhrif á skólana okkar í Afríku og Asíu

Við fylgjumst náið með hvernig staðan er og að skólastjórnendur fylgi fyrirmælum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO og yfirvalda í hverju landi. Við segjum stolt frá því að allir nemendur og starfsfólk allra skólanna okkar hafa fengið kennslu og fyrirmæli varðandi handþvott með vatni og sápu og þrifum á umhverfi sínu. Ekkert staðfest smit né grunur um smit […]