fbpx

Fréttir af starfinu

Heimsók frá Filippseyjum – opið hús 7. maí

Kæru stuðningsaðilar og velunnarar. Við eigum von á heimsókn frá þremur starfsmönnum Children´s Mission Philippines (CMP). ABC barnahjálp og CMP hafa átt í góðu samstarfi og hafa stuðningsaðilar ABC stutt börn þar til náms í 34 ár. Þau Archie, Bernadette og Jowie vilja fá að sýna þakklæti sitt í verki

Lesa meira...

Alþjóðlegur dagur malaríu – 25. apríl 2024.

Sjúkdómurinn malaría er oft sagður vera sjúkdómur þeirra fátæku. En ár hvert deyja yfir 600.000 manns vegna hans. 249 milljónir tilfelli greindust árið 2022 og voru yfir 95% þeirra í Afríku. Baráttan gegn malaríu er eitt þeirra atriða sem lögð er áhersla á í Heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun. Markmiðið er að

Lesa meira...

Vorfagnaður ABC barnahjálpar

Fimmtudaginn 18. apríl heldur ABC barnahjálp vorfagnað í Veginum Fríkirkju, Smiðjuvegi 5, Kópavogi Verður í boði glæsilegt þriggja rétta veisluhlaðborð og munu frábærir tónlistarmenn stíga á stokk. Meðal annars eru það Jógvan, Unnur Sara, Anna Fanney og Eva Margrét, undir stjórn Emils Heiðars Björnssonar. Við verðum með glæslilegt málverkauppboð á

Lesa meira...

Skák í Búrkína Fasó

Skákkennsla byrjaði í ABC skólanum í Búrkína Fasó síðastliðið haust og hefur góður hópur nemenda sýnt skákinni mikinn áhuga. Við útbjuggum sýningartafl og einfalda taflmenn sem kennarinn notar í kennslunni. Þúsundþjalasmiðurinn okkar, Adam Ásgeir Óskarsson, útbjó í framhaldinu gæða taflmenn fyrir sýningarborðið og fékk góða aðstoð frá öflugum fjölskyldumeðlimum. Skáksamband

Lesa meira...

Takk HSÍ! Áfram Ísland!

Handknattleikssamband Íslands gaf ABC barnahjálp handboltafatnað sem nemendur í ABC skólanum í Búrkína Fasó fengu nú í byrjun árs. Þau senda strákunum okkar baráttukveðjur fyrir stóra leikinn í dag. Við kunnum HSÍ bestu þakkir fyrir að gefa börnunum þennan frábæra fatnað. Áfram Ísland!

Lesa meira...

Gjöf til starfsins

Á liðnu ári fagnaði ABC barnahjálp 35. starfsári sínu. Í tilefni þess fóru þeir Hjalti Skaale Glúmsson framkvæmdastjóri ABC og Óskar Steinar Jónsson verslunarstjóri Nytjamakaðanna m.a. á Austurland fyrr í vetur til að kynna starfsemi ABC og fagna afmælinu með velunnurum okkar þar. Áttu þeir góða kvöldstund í Eskifjarðarkirkju ásamt

Lesa meira...

Þú getur styrkt barn með mánaðarlegum greiðslum.