Nytjamarkaðir

Svartur texti sem segir „Nytjamarkaðurinn“ á ljósum bakgrunni

ABC Barnahjálp rekur tvo nytjamarkaði á höfuðborgarsvæðinu þar sem hægt er að gera góð kaup og um leið styðja mikilvægt hjálparstarf fyrir börn í fátækt.


Smiðjuvegur 2 – Kópavogi

Að Smiðjuvegi 2 er aðalnytjamarkaður okkar og vörumóttaka. Þar tökum við á móti gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum sem vilja gefa hlutum nýtt líf og styðja gott málefni.


Nú er kjörið tækifæri til að fara yfir geymsluna, bílskúrinn, fataskápinn eða skrifstofuna og athuga hvort þar leynist hlutir sem gætu nýst öðrum. Við tökum á móti fjölbreyttum gjöfum, þar á meðal fatnaði, skóm, húsbúnaði, bókum, leikföngum, skartgripum, töskum og ýmsum öðrum nytjahlutum.


Smiðjuvegur 2

200 Kópavogur

520-5500

nytjo@abc.is


Opnunartími:
12:00 – 18:00 alla virka daga
12:00 – 16:00 á laugardögum og sunnudögum

Laugavegur 118 – Reykjavík

Í verslun okkar á Laugavegi 118 er áherslan á fallega og vel valda nytjavöru í notalegu umhverfi í hjarta Reykjavíkur. Þar má finna fatnað, skó, töskur, skartgripi, bækur, spil og ýmsa aðra smávöru sem hefur fengið nýtt líf.

Verslunin er vinsæll áfangastaður fyrir þá sem vilja versla á sjálfbæran hátt, finna einstaka hluti og styðja um leið við gott málefni.


Gjafir sem breyta lífi

Þegar einstaklingar og fyrirtæki gefa á nytjamarkaði ABC Barnahjálpar styðja þau ekki aðeins við endurnýtingu og sjálfbærni heldur hjálpa einnig börnum sem búa við erfiðar aðstæður.


Allur ágóði af starfseminni rennur til verkefna ABC Barnahjálpar í Afríku og Asíu þar sem samtökin styðja börn og fjölskyldur með menntun, húsaskjóli, næringu og öðrum grunnþörfum.


Með því að gefa eða versla hjá okkur gefur þú hlutum nýtt líf – og börnum ný tækifæri.


Laugavegur 118

105 Reykjavík

520-5505
nytjolv@abc.is


Opnunartími:
12:00 – 18:00 alla virka daga
12:00 – 16:00 á laugardögum og sunnudögum

Fimm manns í rauðum skyrtum sitja úti meðal trjáa á hlíð

Nytjamarkaðir abc

Laugavegur 118

105 Reykjavík

520-5505
nytjolv@abc.is

Smiðjuvegur 2

200 Kópavogur

520-5500

nytjo@abc.is

Nytjamarkaður ABC eru mikilvægur hluti af fjáröflun okkar. Þar seljum við notaðar vörur á hagstæðu verði. Þannig getur þú gert góð kaup og stutt gott málefni á sama tíma.