UM OKKUR

Um ABC barnahjálp

Það byrjar oft á einu barni.


Barni sem vill læra – en hefur ekki tækifæri til þess.


Í mörgum samfélögum þar sem við störfum er skólaganga ekki sjálfgefin. Börn haf ekki möguleika á að fara í skóla vegna fátæktar, skorts á aðstöðu eða einfaldlega vegna þess að engin önnur leið er í boði. En með réttum stuðningi getur líf barns breyst – og með því framtíð heillar fjölskyldu.


ABC barnahjálp er íslensk hjálparsamtök sem hafa starfað óslitið frá 1988. Í meira en þrjá áratugi höfum við unnið að því að skapa raunveruleg tækifæri fyrir börn sem búa við erfiðar aðstæður.


Við styðjum börn í Afríku og Asíu til náms og betri lífsskilyrða. Það gerum við með því að tryggja aðgang að menntun, næringu og öruggu umhverfi – og með því að byggja upp skóla og samfélög þar sem börn geta vaxið og dafnað.


Í gegnum persónulega styrktarsambönd tengjum við fólk beint við barn. Þannig verður stuðningurinn raunverulegur – ekki bara tölur, heldur saga, tenging og von.


Við vitum að menntun er eitt öflugasta verkfærið til að rjúfa vítahring fátæktar.
Og við vitum að hvert barn skiptir máli.

Þess vegna erum við hér.

Merki ABC Barnahjálpar með bláum stöfum og rauðum hjartalaga borða

Með því að styðja ABC barnahjálp ert þú að stuðla að bættu lífsagðum fyrir börn og fjölskyldur þeirra.

Hvernig legg ég af mörkum?


Veldu mánaðarlegt framlag

Þú getur valið milli tveggja leiða — dagvistun í skóla eða heimavistarskóli.


Mismunandi leiðir til að styrkja

Hendur sem halda svörtu hjartatákni á milli sín

Mánaðarlegur styrkur

Táknmynd af opinni hendi sem heldur á einhverju, svart á hvítum bakgrunni

Hjálparsjóður barna

Táknmynd af svörtum útskriftarhúfum með skúfi

Háskólasjóður

Táknmynd af gjafakassa með borða og slaufu efst

Minnigargjöf

Tákn fyrir innpakkaða gjafakassa með borða og slaufu

Gjafabréfin

Svart tákn af hendi sem heldur á tveimur byggingum

Stólpar Abc-fyrirtæki

Starfsfólk ABC

Tímalínan okkar 1988-2010

Þú getur dregið tímalínuna til vinstri til að sjá meira

1988
ABC hjálparstarf
ABC hjálparstarf var stofnað í júní af átta einstaklingum. Skrifstofu var komið upp í Sóltúni í Reykjavík. Ýmsum hugmyndum kastað fram um hvernig skuli raungera hugsjón þessara nýju samtaka.
1989
Fyrstu verkefnin
Prentaðar lestrarkennslubækur og haldin lestrarkennslunámskeið á tveimur indíánamálum í Mexíkó. Námskeiðin voru haldin fyrir tvo þjóðflokka í samstarfi við þekkta Biblíuþýðendur í Bandaríkjunum.
Árið eftir var haldið lestrarkennsluverkefni fyrir þjóðflokk á Fílabeinsströndinni.
1990
Samstarf við Barnmissionen og stuðningur á Filippseyjum
Árið 1990 hóf ABC í samstarfi við Barnmissionen, sænsk hjálparsamtök, að styðja börn til náms á Filippseyjum. Barnmissionen rekur þrjá forskóla, einn grunnskóla, stendur fyrir starfsnámi í alls kyns greinum og starfrækir barnaþorp í samstarfi við félagsmálayfirvöld.
Samstarf ABC við Barnmissionen hefur haldist alla tíð síðan og í dag taka sænsku hjálparsamtökin virkan þátt í gæðaeftirliti með skólum ABC.
Í dag styrkja íslenskir stuðningsaðilar hundruð barna til náms á Filippseyjum.
ABC barnahjálp safnaði einnig pening fyrir byggingu barnaheimilis í Kambódíu sem Barnmissionen rekur
1993
Starf hafið í Úganda
Samstarf hafið við Uganda Australia Foundation sem hjónin Trudy og Francis Odida stofnuðu til hjálpar nauðstöddum börnum í Úganda. Samtökin bera nafnið ABC Children’s Aid Uganda í dag.
Alls rekur ABC Children´s Aid Uganda níu skóla í landinu og samstarfið heldur áfram í dag. Íslenskir styrktaraðilar styðja á annað þúsund börn til náms í skólunum.
1995
Starf hafið á Indland
ABC stendur fyrir stofnun heimilis fyrir götubörn í borginni Chennai á Indlandi. Hugsjónarkonan Eva Alexander stofnaði Comforter Ministries í þeim tilgangi að hjálpa hinum stéttlausu að mennta sig og komast í starfsnám.
Í gegnum árin hefur ABC staðið fyrir söfnunum og hjálpað samtökunum að koma sér upp og í dag er rekinn skóli sem gagnast þeim nauðstöddu sem annars gætu ekki nálgast menntun sökum stöðu sinnar og fátækt
1996
Stuðningur við Heimili litlu ljósanna á Indlandi
ABC stendur fyrir byggingu íbúðarhúss og fjárfestir í landi fyrir Heimili litlu ljósanna á Indlandi.
Í gegnum árin hafa tugþúsundir fátækra barna fengið góða menntun í skólanum og á landsvísu hefur hann skarað fram úr ár eftir ár. Einnig er skólinn mjög sjálfbær þar sem rekinn er eigin búgarður og mikil grænmetisrækt er á svæðinu.
Íslenskir stuðningsaðilar hafa frá upphafi styrkt börn til náms og ABC hefur staðið fyrir fjölmörgum söfnunum sem hafa hjálpað til við uppbyggingu skólans.
1996
Úganda
Keypt húsnæði og land fyrir skólabyggingu í Úganda og unnið að stækkun skólans
1997
Indland
Keypt land fyrir El Shaddai barnaheimilið á Indlandi.
1998
Börn hjálpa börnum
Árleg söfnun ABC barnahjálpar, Börn hjálpa börnum, fer af stað.
Nemendur í grunnskólum landsins taka höndum saman og ganga í hús eða til fyrirtækja á nærliggjandi svæðum og safna í bauka. Söfnunarféð er svo notað í ýmis brýn verkefni eða notað til að styrkja innviði skólastarfs í stuðningslöndunum.
Frá upphafi hafa þessir “sendiherrar ABC” safnað rúmlega 130 milljónum króna til styrktar starfinu.
1998
Indland
Byggð fyrsta hæðin á kornabarnahúsi í Orissa á Indlandi.
1998
Úganda
Byggt viðbótarhús við skólann í Úganda.
1998
Indland
Byggðar 20 starfsmannaíbúðir, 3 svefnskálar fyrir stúlkur og hús fyrir drengi á Heimili litlu ljósanna á Indlandi.
1999
Indland
Byrjað á byggingu íbúðarhúss fyrir El Shaddai barnaheimilið á Indlandi.
2000
Indland
Komið á fót saumaskóla og menntaskóla og byggður nýr barnaskóli og tvær svefnálmur fyrir Heimili litlu ljósanna á Indlandi.
2002
Indland
Lokið byggingu El Shaddai barnheimilisins á Indlandi.
2003
Indland
Byggður verkmenntaskóli á Heimili litlu ljósanna.
2003
Úganda
Byggður forskóli og lagður grunnur að barnaskóla í Úganda.
2004
ABC hjálparstarf verður ABC barnahjálp
Nafninu á samtökunum breytt í ABC barnahjálp. Nafnið þótti betur árétta eðli starfsins.
2004
Indland
Unnið að byggingu kornabarna- og starfsmannahúss fyrir El Shaddai barnaheimilið á Indlandi
2005
Indland
Lokið við byggingu starfsmannahúss fyrir El Shaddai barnaheimilið á Indlandi.
2005
Starf hafið í Pakistan og höuðstöðvar ABC flytja
ABC hefur samstarf við pakistana að nafni Sharif Ditta sem hóf starfsemi skóla í eigin húsnæði sem synir hans byggðu fyrir hann til að njóta eftirlaunaaldurs.
Alls stóð ABC fyrir byggingu sex skóla í landinu með söfnunum og stuðningi frá íslenskum styrktarforeldrum. Árið 2017 lauk samstarfi ABC í Pakistan en starfsemin gengur mjög vel og er orðin sjálfbær.
Einnig flytja höfuðstöðvar ABC barnahjálpar úr Sóltúni yfir í Síðumúla
2006
Starf hafið í Kenía
ABC hefur starfsemi í Naíróbí, höfuðborg Kenýa. Í fyrstu var opnað heimili fyrir umkomulaus börn í einkahúsnæði.
Nemendur skólans eru fyrrum götubörn sem hafa alist upp í fátækrahverfunum.
2006
Pakistan
Í Pakistan voru byggðir þrír ABC skólar auk þess sem heimavistir voru settar á fót
2006
Úganda
Í Úganda var byggð fjórða hæðin nýja ABC skólans í Kitetikka.
Einnig var haldið áfram með uppbygginguna í Rackoko þar sem hafist var handa við byggingu heimavistar fyrir stúlkur.
Lokið var við byggingu álmu fyrir tilrauna- og tölvustofur við unglingaskólann í Kitetikka sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands kostaði ásamt útvarpsstöð í Rackoko sem samstarfsverkefni með ABC barnahjálp.
2006
Indland
Settir voru á fót kvöldskólar í 10 dalítaþorpum til viðbótar þeim 10 sem fyrir voru.
Byggður seinni svefnskálinn fyrir 400 drengi á Heimili litlu ljósanna á Indlandi fyrir söfnunarfé úr Börn hjálpa börnun árið 2005.
Kornabarnahús var byggt við El Shaddai barnaheimilið við Chennai á Indlandi
2007
Starf hafið í Búrkína Fasó
Hinrik Þorsteinsson og Guðný “Gullý” Ragnhildur Jónasdóttir halda út til Búrkína Fasó til að hefja starf á vegum ABC.
Viðamikið starf hefur byggst upp og í dag er kominn á laggirnar menntaskóli og munu nemendur geta klárað ígildi stúdentsprófs í skólanum.
Skólinn er staðsettur nálægt stóru fátækrahverfi og nemendur hefðu án hans ekki kost á skólagöngu.
Í fyrstu er byrjað að kenna í bráðabirgðarhúsnæði.
2007
Pakistan
Byggður skóli í Jaranwala í Pakistan fyrir söfnunarfé frá Borgarholtsskóla.
2007
Úganda
Lokið við byggingu heimavistar fyrir 600 börn í Rackoko í Norður Úganda.
2008
Nytjamarkaður stofnaður
Nytjamarkaður ABC hefur göngu sína í Faxafeni í samstarfi við Líknarfélag Kærleikans. Ári seinna er hann fluttur yfir í Skútuvog og er alfarið rekinn af ABC barnahjálp og mannaður af sjálfboðaliðum á vegum samtakanna.
Stærra og betra húsnæði fannst handan við hornið í Súðarvogi og “Nytjó” orðinn að mikilvægri tekjulind fyrir samtökin. Markaðurinn festir rætur og hefur alla tíð síðan reynst ómissandi í að breiða út boðskap ABC ásamt því að vera heilmikil búbót fyrir landsmenn.
2008
Úganda
Í Úganda var byggður forskóli í Rackoko sem var gefið nafnið Little Verzlo því hann var gjöf nemenda Verslunarskóla Íslands.
2008
Indlandq
Lýsing á þessum mikilvæga tímapunkti í sögunni.
2008
Pakistan
Í Pakistan voru fjórir nýir skólar settir á fót í leiguhúsnæði og framkvæmdir hafnar við byggingu fimmta skólans. Framkvæmdir hafnar á nýju landi ABC, byggður veggur í kring og byggingarframkvæmdir hafnar við heimavistarskóla.
2008
Senegal
Í Senegal var settur á fót forskóli fyrir 60 börn auk fótboltaskóla.
2008
Filippseyjar
Á Filippseyjum voru sjö ABC skólar settir á fót á Luzon og Negros eyjum.
2009
Star of Hope í Kenía
Starfsemi ABC í Naíróbí í Kenýa flyst til skólans Star of Hope sem staðsettur er í miðju fátækrahverfisins Mathare.
2009
ABC skólinn hefur göngu sína
Lýsing á þessum mikilvæga tímapunkti í sögunni.
2010
Indland
Á Indlandi var lokið við byggingu nýs skóla með 10 kennslustofum fyrir Heimili litlu ljósanna og Hafin bygging nýs barnaskóla við El Shaddai barnaheimilið í Chennai á Indlandi.
2010
Senegal
Athvarf fyrir götudrengi sett á fót í leiguhúsnæði í Senegal.
2010
Búrkína Fasó
Nýtt skólahús með 6 kennslustofum var byggt fyrir skólann í Búrkína Fasó

Tímalínan okkar 2011-2026

Þú getur dregið tímalínuna til vinstri til að sjá meira

2011
Indland
Lokið við byggingu skóla fyrir El Shaddai barnaheimilið á Indlandi fyrir 225 börn.
2011
Búrkína Fasó
Í Búrkína Fasó flutti skólinn formlega í nýtt húsnæði. Borað var fyrir vatni og brunnur gerður á skólalóðinni, nýr matsalur og eldhús voru byggð við skólann ásamt litlu húsi fyrir húsvörðinn.
2011
ABC styrkir jákvæðar forvarnir í skólum
ABC ræðst í fyrsta innanlandsverkefnið í samstarfi við Marita fræðsluna og IOGT.
Samtökin kosta jákvæðar forvarnir í tólf grunnskólum fyrir nemendur og foreldra 5. og 6. bekkinga.
Magnús Stefánsson hefur haldið fjölda kynninga fyrir nemendur og foreldra. Frá og með árinu 2018 hefur hann talað við um 180.000 einstaklinga. Í dag eru kynningarnar undir nafninu “Forvarnarfræðsla Magga Stef”.
2011
Starfið stækkar í Kenía
Í lok ársins setti ABC á fót skóla að nafni ABC Complex School á svæði Masaai fólksins á miklu dreifbýlissvæði í Kenýa.
Framtíðarhorfur Masaai búa eru í miklu uppnámi sökum slæmra skilyrða og því binda þeir miklar vonir við menntun barnanna. Fátæktin á svæðinu er gríðarleg.
Nemendur skólans byrja í grunnskóla og geta klárað ígildi stúdentsprófs.
2012
ABC opnar annan nytjamarkað
Nýr nytjamarkaður, Hakuna Matata, var opnaður á Laugavegi 103. Þar var aðallega seldur fatnaður og smávara.
Í kjölfarið var lista- og menningarmiðstöðin Líf fyrir líf opnuð á sama stað. Hugmyndin með miðstöðinni var að bjóða fólki að taka að sér að styrkja barn í minningu látins ástvinar.
Starfsemi Hakuna Matata og Líf fyrir líf var hætt árið 2014.
2013
Heimavist stúlkna í Pakistan
Framkvæmdir hefjast á heimavist fyrir stúlkur í Machike í Pakistan.
Heimavistin mun vista 240 stúlkur
2014
Ný skólabygging í Búrkína Fasó
Í ágúst var hafist handa við að byggja skólahúsnæði fyrir unglingadeild við ABC skólann. Til stendur að hún muni verða þrjár hæðir.
2015
Höfuðstöðvar og “Nytjó” flytja í Kópavoginn
Í ársbyrjun flytja höfuðstöðvar ABC og “Nytjó” starfsemi sína yfir í Víkurhvarf 2 í Kópavogi.
Í fyrsta sinn eru Nytjamarkaðurinn og skrifstofur samtakanna á sama stað.
2015
ABC blaðið
ABC gefur út tímarit um málefni samtakanna.
Blaðið inniheldur alls kyns fróðleik um ABC barnahjálp, viðtöl við skjólstæðinga, vettvangsleiðtoga, stuðningsaðila og fleiri.
Gefin eru út tvö tímarit á ári og fá allir stuðningsaðilar eintak sent heim til sín
2015
Heimavist stúlkna Pakistan fullkláruð
Lokið við byggingu heimavistar stúlkna í Machike í Pakistan.
2016
Miklar framkvæmdir í Búrkína Fasó
Sjálfboðaliðar og heimamenn lyfta sannkölluðu grettistaki og mikið gerist á árinu í ABC skólanum í Búrkína Fasó.
Væntanlegi menntaskólinn kominn langt á leið, stærri vatnstanki komið fyrir, lögð vatnsdæla og vatnið flæddi sem aldrei fyrr, fleiri sólarsellum komið fyrir svo eitthvað sé nefnt.
Sjálfboðaliðar hafa verið duglegir að leggja leið sína til Búrkína Fasó og starfið hreinlega blómstrar.
2017
Börn hjálpa börnum
Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson setti formlega af stað söfnunina Börn hjálpa börnum í Áslandsskóla í Hafnarfirði. Frá upphafi hafa nemendur safnað rúmlega 120 milljónum króna til styrktar fátækum börnum í fjarlægum löndum. Söfnunin hefur verið hreint ómetanleg fyrir starfsemi ABC barnahjálpar.
2017
Kvennakvöld og tónleikar
Kvennakvöld til styrktar konum í Búrkína Fasó var haldið í maí í kaffisal Fíladelfíu. Heiðursgestur kvöldsins var Guðný Ragnhildur Jónasdóttir oftast kölluð Gullý. Sagði hún frá starfinu og lífi kvenna í Afríku.
Óskar Einarsson, píanóleikari og kórstjóri, hélt upp á 50 ára afmæli sitt með því að halda gospeltónleika í Lindakirkju, allur ágóði af tónleikunum rann til ABC. Upphæðin var notuð til að kaupa sólarsellur fyrir skólann í Búrkína Fasó.
2017
Nýr matsalur í Búrkína Fasó
Nýr matsalur, um 375 fermetrar að stærð, er tekinn í notkun í ABC skólanum í Búrkína Fasó.
Matsalurinn var heilmikil framkvæmd og rúmar um 700 börn.
2017
Tímamót á Heimili litlu ljósanna
Það er ánægjulegt að tilkynna að starfsemin á Indlandi er orðin fullkomlega sjálfbær.
Samstarf ABC barnahjálpar og Heimilis litlu ljósanna lýkur á þeim ánægjulegu nótum að ekki er þörf á frekari fjárstuðning. Með dyggri hjálp stuðningsaðila og fjársafnana á rúmlega 20 árum hefur skólinn náð þessum áfanga.
2017
Hefjum samstarf í Bangladess
Í desember hóf ABC samstarf við frjálsu félagasamtökin Agape Social Concern (ASC) . ASC hefur starfað í Bangladess frá árinu 1997 og markmið þeirra er félagsleg uppbygging fátækra og útskúfaðra einstaklinga og hópa. ASC rekur Heimili friðar og þar fá börn kennslu og heimavist.
2017
Nýjar skólastofur í Namelok
Tvær nýjar skólastofur teknar í notkun í ABC skólanum í Namelok í Kenía. Byggingarnar voru fjármagnaðar fyrir ágóða söfnunarinnar Börn hjálpa börnum
2018
ABC barnahjálp 30 ára
Þetta starfsár var okkur sérstakt fagnaðarefni því við fögnuðum 30 ára afmæli. Tugþúsundir barna hafa haldið út í lífið með menntun og von fyrir milligöngu ABC á þessum 30 árum.
2018
Nýr samstarfsaðili í Pakistan
ABC hefur samstarf með nýjum samstarfsaðila í Pakistan (Rasta brick slave children). Nemendur eru afkomendur „múrsteinaþræla“
2018
Ný heimavist í Úganda
Ný heimavist fyrir stúlkur byggð við skólan í Úganda ásamt salernisaðstöðu fyrir nemendur og kennara.
2018
Sólarsellur og íþróttasvæði í Búrkína Fasó
Nýjar sólarsellur fyrir skólann í Búrkína Fasó voru teknar í notkun og opnað var nýtt bókasafn fyrir gjafafé. Íþróttasvæðið var klárað fyrir styrk úr sjóðinum “Börn hjálpa börnum”
2018
Betra aðgengi að vatni í Úganda
ABC byggði nýja vatnsstanda við skólana í Úganda, með styrk frá ICEIDA.
2019
Nýtt leiksvæði í Pakistan
Í byrjun árs var byggt nýtt leiksvæði við skólann með útileiktækjum og íþróttavarningi. Einnig var sett upp nemendaeldhús svo börnin eiga sitt eigið te og drykkjarhorn sem þau geta nýtt á skólatíma.
2019
Nýjir vatnsstankar í Úganda
Vatnsverkefninu “Save water” lauk í febrúar en á alþjóðlega degi vatnsins þann 22.mars voru nýju vatnstankarnir formlega vígðir og fengu öll börnin í grunnskólanum gefins vatnsflöskur til að fylla á, á daginn.
2019
Nýr leikskóli og vatnsturn í Búrkína Fasó
Nýr leikskóli var byggður fyrir gjafafé frá Nytjamarkaðinum á Selfossi og gerði okkur kleift að taka inn tvo nýja árganga, 4 og 5 ára.
Vaskir menn fóru frá Áveitunni á Akureyri og gáfu starfinu alla vinnu og mikinn kostnað til að setja upp þennan vatnsturn og pípulagnir í húsinu.
2019
Sólarsellur í Bangladess
Lýsing á þessum mikilvæga tímapunkti í sögunni.
2019
Heimavistir í Búrkína Fasó
Ný stúlkna- og drengjaheimili voru byggð á Líflandi og fluttu stúlkurnar inn í október og drengirnir í desember.
2019
Dýpri borhola og bætt öryggi í Kenía
Fengum styrk frá Utanríkisráðuneytinu til að bæta vatnsaðstöðu skólans með dýpri borholu og byggja og hlaða upp öryggisvegg umhverfis skólasvæðið.
2020
Ný skólabygging í Bangladess
Ný skólabygging var byggð í Bangladess og tekin í notkun í janúar.
2020
Rafvæddum skólasvæðið í Búrkína Fasó
ABC fékk styrk frá Utanríkisráðuneytinu til þess að rafvæða með sólarrafhlöðum heimavistir og ýmis önnur hús sem tengjast starfsemi skólans í Búrkína Fasó
2020
Viðgerðir á Filippseyjum
Farið var í töluverðar framkvæmdir á húsnæði skólans í Molfried Center. Þakið lagað og málað, hús máluð að utan og innan og lagfært þar sem við átti.
2020
Tölvuver í Bangladess
Safnað var fyrir nýju tölvuveri í Bangladess. Keyptar voru 25 tölvur fyrir nemendur og 2 fyrir kennara.
2020
Kenía nýtt fjölnotahús og viðhald
Byggt var nýtt fjölnotahús við heimavistina, eldhúsaðstaðan máluð og bætt, gangstígur lagður á milli húsa, salerninsaðstaðan bætt og leiktæki yfirfarin.
2020
Nýr bíll í Búrkína Fasó
Keyptur var nýr Toyota Land Cruiser sem afhentur var í desember og kom í stað þess gamla sem var orðinn 21 árs og ónýtur en hafði þó þjónað skólanum í Bobo dyggilega í 11 ár.
2021
Nytjamarkaðurinn og skrifstofa ABC flytja
Í byrjun febrúar 2021 opnaði ABC barnahjálp Nytjamarkaðinn í nýju húsnæði á Nýbýlavegi 6, eftir sex ára farsæla starfsemi í Víkuhvarfi 2. Flutningar af þessari stærðargráðu eru afar krefjandi, en starfsfólk ABC og Nytjamarkaðarins tóku höndum saman og leystu þetta verkefni af einstakri kostgæfni og góðri samvinnu. Í kjölfarið opnaði svo skrifstofa ABC barnahjálpar einnig skrifstofu í sama húsnæði þann 1. mars.
2021
Kalt vatn í Pakistan
Nytjamarkaður ABC fjármagnaði nýjan brunn, ásamt vatnsdælum með kælingu þannig að nemendur og aðrir geta núna fengið sér kalt og hreint vatn hvenær sem er yfir daginn á skólalóðinni.
2021
Hænur og matjurtagarður í Kenía
Keyptar voru hænur og byggður hænsnakofi á lóð heimavistarinnar. Nemendur fengu þjálfun í að sinna hænunum og eggjatínslu. Einnig var settur upp matjurtagarður. Þessi tvö litlu verkefni hafa bætt mataræði á heimavistinni um leið og nemendur taka ábyrgð og læra að sinna dýrum og ræktun
2021
Skólahúsnæðið stækkað í Pakistan
Mikil uppbygging er á skólalóðinni sem bætir alla aðstöðu við skólann. Skólahúsnæðið hefur verið stækkað en bætt var við nýrri álmu með þremur skólastofum og einni kennaraskrifstofu.
2021
Gjafagámur sendur til Búrkína Fasó
Vorið 2020 keyptum við 40 feta gám sem fylltur var af húsgögnum og fatnaði sem Nytjamarkaðurinn safnað saman en bæði einstaklingar og fyrirtæki gáfu einnig gjafir sem fóru með. Þar á meðal voru reiðhjól, íþróttafatnaður og íþróttavarningur, heilt bretti af nýjum skóm, fatnaður, efni fyrir saumastofuna, verkfæri og garðyrkjuáhöld, vatnsdælur, tölvuskjáir og hljóðfæri. Gámurinn var sendur af stað frá Íslandi í janúar og var kominn á áfangastað í Búrkína Fasó þann 4. maí við mikinn fögnuð og gleði bæði barna og fullorðina.
2021
Tölvuver í Kenía
Lýsing á þessum mikilvæga tímapunkti í sögunni.
2021
Trjárækt hafin í Bangladess
Verkefnið „Tree plantation program“ fór af stað í júnímánuði í Bangladess þar sem allir nemendur og starfsfólk skólans taka þátt. Á landi skólans hafa verið í Þessu verkefni gróðursett um 500 ólíkar tegundir trjáa og eru þar á meðal Sítrónutré, Betel hnetutré, Rangan Flower og nokkur skógartré.
2021
Heimsókn frá Kenía
Pius, fyrrum nemandi og núverandi starfsmaður MCE, sem ABC er í samstarfi með í Kenýa, kom til Íslands ásamt John, framkvæmdastjóra MCE í nóvember. Heimsóttu þeir og spjölluðu við um 400 ungmenni í skólum og kirkjum.
2022
Kvennadeild opnuð í norður Úganda
Fengum styrk frá Utanríkisráðneytinu til að lagfæra og breyta húsnæði til að opna kvennadeild til að bæta aðgengi og gæði mæðraþjónustu fyrir mæður í dreifbýlinu í kringum Rackoko.
2023
Malaríudeild í norður Úganda
Fengum styrk frá Utanríkisráðuneytinu til að byggja upp malaríudeild í húsnæði samtakanna sem hafði skemmst í óveðri nokkrum árum áður.
2023
Opnun klæðsekeraskóla í Pakistan
Með hjálp frá Utanríkisráðuneytinu opnuðum við klæðskeraskóla fyrir ungar konur í nágreni skólans.
2024
Opnun heimavista í norður Úganda
Fengum styrk frá Utanríkisráðurneytinu til að enduirbyggja heimavist á skólalóð samtakanna þar sem áður voru skólastofur.
2025
Ný byggining í Búrkína Fasó
Tókum í notkun nýja þriggja hæða viðbyggingu við framhaldskólann í Búrkína Fasó sem var styrkt af Utanríkisráðuneytinu
2026
Ný skólabygging í Úganda
Tókum í notkun nýja skólabyggingu í norður Úganda, 3 nýjar stofur, kennarastofa og skrifstofur skólans