Starfsemin | ABC Barnahjálp
ÚGanda
48,7m
Íbúar í landinu
41%
Eru undir fátæktarmörkum
77%
Eru undir 30 ára
6,2 ár
Meðalfjöldi ára í skóla
63,4 ár
Lífslíkur við fæðingu
Aðalstarfssvæði
Kampala og Rackoko
Fjöldi barna studd af abc
650 börn
Aðalstarfssvæði
Naíróbí
Fjöldi barna studd af abc
230 börn
ABC Children's Aid Uganda
Samtökin hétu áður Uganda Australia Foundation og voru stofnuð af hjónunum Trudy og Francis Odida. Trudy er áströlsk en Francis Úgandamaður. Þau hjónin hafa byggt upp viðamikið hjálparstarf sem sinnir þúsundum barna. Uganda Australia Foundation gerðist samstarfsaðili ABC árið 1993. Árið 2007 var svo nafninu breytt í ABC Children’s Aid Uganda. Í dag styrkir ABC barnahjálp um 650 börn í Úganda með hjálp íslenskra stuðningsaðila og hefur byggt skóla í Kitetika og Rackoko í samstarfi við þau hjón. ABC Children‘s Aid Uganda rekur alls 9 skóla; forskóla, barnaskóla, framhaldsskóla og verknámsskóla.
Skólakerfið
Skólaárið í Úganda hefst í byrjun febrúar. Hvert skólaár skiptist niður í þrjár annir og taka börnin próf eftir hverja önn: febrúar - apríl, maí - ágúst og september - nóvember.
Skólarnir skiptast í eftirfarandi:
Forskóli fyrir 3ja til 5ára börn. Barnaskóli fyrir 1. til 7. bekk. Í lok 7. bekkjar taka börnin samræmt próf. Framhaldsskóli sem skiptist í S1-S4 með lokaprófi. Það er líka boðið upp á S 5-S 6 sem gefur réttindi til að fara í háskóla.
Úganda er lítið land í Austur-Afríku höfuðborg landsins heitir Kampala. Með landamæri að Súdan í norðri, Zaire í vestri, Rwanda og Tansaníu í suðri og Kenýa í austri. Úganda er ríkt af náttúruauðlindum og er kölluð perla Afríku. Úganda liggur yfir miðbaug jarðar. Það eru tvö regntímabil yfir árið; mars - maí og október - nóvember. Hitastig er tiltölulega stöðugt í 25-29 °c vegna hæðar landsins.

abc skólarnir
Skólarnir í Kitetika og Kasangati
Kitetika og þorpin í kring eru u.þ.b. 16 km frá miðborg Kampala, höfuðborg Úganda. Flestir íbúanna eru sjálfsþurftarbændur sem berjast í bökkum við að láta enda ná saman. Flest heimilanna sem börnin okkar búa í eru byggð úr leirsteinum og eru án vatns og rafmagns. Í Kitetika hefur ABC rekið skóla fyrir fátæk börn síðan 1994. ABC skólarnir hafa hlotið fjölda viðurkenninga fyrir góðan námsárangur þrátt fyrir að nánast öll börnin komi úr lægstu stéttum þjóðfélagsins og búi við slæman aðbúnað.
Rackoko
Auk skólanna í Kitetika og Kasangati rekur ABC Children’s Aid fjóra skóla í Rackoko í Norður-Úganda; forskóla (3ja til 5 ára börn), Grunnskóla (1.– 7. bekkur), gagnfræðaskóla (8. til 12. bekkur)og verkmenntaskóla.
Acholi fólkið sem býr í Norður-Úganda hefur alist upp við stríðsástand sl. 35 ár en þar geysaði stríð milli uppreisnarmanna sem kölluðu sig LRA (Lord’s Resistance Army) og stjórnvalda frá 1986 til ársins 2008. Aðstaða fólksins í Rackoko er mjög erfið. Matur og vatn er af skornum skammti, hreinlætisaðstaða er frumstæð og híbýlin eru óviðunandi. Fátækt og sjúkdómar eru útbreytt vandamál meðal barnanna sem hafa þekkt lítið annað en þjáningar um ævina.
UAF (Uganda Australia Foundation, síðar ABC) hóf hjálparstarf á þessu stríðshrjáða svæði í Rackoko í Pader héraðinu í Norður-Úganda árið 1993.
Auk skólanna rekur ABC Children’s Aid heilsugæslustöð fyrir íbúa Rackoko, útvarspsstöð sem útvarpar uppbyggilegu efni allt norður til Súdan og vestur til Kongó.
Úganda
Úganda er lítið land í Austur-Afríku höfuðborg landsins heitir Kampala. Með landamæri að Súdan í norðri, Zaire í vestri, Rwanda og Tansaníu í suðri og Kenýa í austri. Úganda er ríkt af náttúruauðlindum og er kölluð perla Afríku. Úganda liggur yfir miðbaug jarðar. Það eru tvö regntímabil yfir árið; mars - maí og október - nóvember. Hitastig er tiltölulega stöðugt í 25-29 °c vegna hæðar landsins.
Íbúar Úganda eru af mörgum ættflokkum. Enska er opinbert tungumál en Swahili er talað víða í landinu. Luganda er aðalmálið sem talað er í suðri og Luo í norðri.
Um 84,4% þjóðarinnar eru kristnir og um 13,7% múhameðstrúar. Um 80 %íbúa eru bændur og landið er óháð öðrum um mat. Landið berst ennþá við fátækt og ójafnrétti en hefur samt upplifað mikinn fjárhagslegan vöxt og pólitískan stöðugleika. Úganda stóð tiltölulega vel efnahagslega þegar landið varð sjálfstætt árið 1962. Í stjórnartíð sinni rak Idi Amin hins vegar burt flesta þá sem bjuggu yfir erlendri þekkingu og unnu við iðnað og sú aðgerð hafði afar slæm áhrif á efnahag landsins. Langtíma átök gegn LRA og alnæmisfaraldur höfðu í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir efnahaginn í landinu. Í Úganda er fjölkvæni enn við lýði og oft verður skilnaður þegar konan kemst að því að maðurinn er að styðja við fleiri en hana. Eins er það algengt að karlmenn láti sig hreinlega hverfa þegar aðstæður verða erfiðar og konan neyðist til að sjá um börnin ein síns liðs. Það er ósanngjarnt en svona gerist.

Menntun er mikilvægasti hlekkurinn í að rjúfa vítahring fátæktar
Takk fyrir!
Við munum senda þér reikning í heimabanka innan skamms.
Takk fyrir!
Við munum senda þér reikning í heimabanka innan skamms.
Takk fyrir!
Við munum senda þér reikning í heimabanka innan skamms.





