Starfsemin | ABC Barnahjálp
Pakistan
240m
Íbúar í landinu
22%
Eru undir fátæktarmörkum
64%
Eru undir 30 ára
5 ár
Meðalfjöldi ára í skóla
67 ár
Lífslíkur við fæðingu
Aðalstarfssvæði
Sheikhupura
Fjöldi barna studd af abc
286 börn
Aðalstarfssvæði
Lahore
Fjöldi barna studd af abc
54 börn
Aðalstarfssvæði
Naíróbí
Fjöldi barna studd af abc
230 börn
Samstarf ABC barnahjálp í pakistan
Í Pakistan eru 2 samstarfsaðilar:
- Rasta Brick Kiln School í Sheikhupura í Punjab og
- Community Care School í Lahore
Samstarf við Rasta Brick Kiln School
ABC hóf samstarf við frjálsu félagasamtökin Rasta foundation of Pakistan árið 2018. Rasta hefur starfað í Pakistan frá árinu 2009 og markmið þeirra er að hjálpa múrsteinabörnunum að fá menntun og frelsi.
Samstarf við Community Care School
ABC hóf samstarf við Community Care School (CCS) árið 2022. Skólinn byrjaði starfsemi það ár og er markmið þeirra að hjálpa múrsteinabörnum að fá menntun og frelsi.

Skólarnir
Rasta skólinn er í héraði sem heitir Sheikhupura, þar sem flestar fjölskyldur eru skuldum vafnar við verksmiðjueigendur.
Þar fá börn kennslu í dagskóla frá leikskóla upp í 10. bekk. Læra þau Urdú, ensku, stærðfræði, ljóð og myndlist, félagsfræði, trúabragðafræði, vísindi, landafræði, sögu og tölvukennslu. Í skólanum geta þau klárað ígildi gagnfræðaskólanáms og er námið bæði bóklegt og verklegt.
Þessi börn eiga það sameiginlegt að þau hafa ekki fengið neina kennslu á nokkurn hátt áður en þau koma í Rasta skólann.
CCS skólinn er í útjaðri stórborgarinnar Lahore, þar sem margar fjölskyldur eru skuldum vafnar við verksmiðjueigendur. Þar fá börn á leikskóla- og grunnskólaaldri bóklega og verklega kennslu og munu á endanum ljúka grunnskólaprófi. Þessi börn eiga það sameiginlegt að þau hafa ekki fengið neina kennslu áður en þau koma í CCS skólann.
Vaxandi samfélag
Rasta Foundation Brick Kiln Slaves School var stofnaður árið 2009 en upphafsmaður starfsins er kristinn prestur að nafni Shamoun Chand. Chand ólst upp í nágrenni múrsteinaverksmiðjanna og sá þörfina hjá þessum óafskipta hópi barna sem voru án réttar og náms. Chand byrjaði í litlu húsnæði með þrjá kennara. Árið 2013 komu sænsk samtök og byggðu nýja skólabyggingu fyrir samtökin sem var vígð 28. nóvember 2013. Skólinn hefur vaxið jafnt og þétt og í dag eru yfir 200 nemendur og 18 kennarar og starfsmenn.
CCS var stofnaður árið 2022 af Ösmu Mustaq sem tilheyrir kristnum minnihlutahópi í Pakistan. Asma stundaði m.a. nám í Svíþjóð og var boðið að starfa þar en köllun hennar var að starfa fyrir illa staddar konur og börn í Pakistan. Núna stunda 54 börn nám við skólann í lítilli skólabyggingu en markmiðið er að skólinn muni vaxa jafnt og þétt á næstu árum, eftir því sem nýir árgangar bætast við.
Skólastarfsemi
Mikið er lagt upp úr því að nemendur læri um og verði meðvituð um rétt sinn og skyldur í samfélaginu.
Markvisst er stuðlað að fræðslu um grunnþarfir barna, barnavernd, barnaþrælkun, mansal, kynjaafnrétti og fleira. Félagsleg vandamál eru mörg í landinu og mikið níðst á réttindum þegna landsins.
Flest börn byrja í forskóla 6 ára. Grunnskólinn er eins og á Íslandi frá 1. bekk upp í 10. bekk en þá taka nemendur samræmd próf og geta farið í áframhaldandi nám ef þeir ná prófunum.
Skólaárið í Pakistan skiptist í þrjár annir.
- Fyrsta önnin er frá aprí til júní
- Sumarskóli er frá júní til júlí
- Önnur önn er frá september til desember
- Þriðja önnin er frá janúar til mars
Óspillta kynslóðin
Það er samróma álit flestra að spilling sé helsta ástæða fátæktar í heiminum. Hugmyndafræðin um „óspillta kynslóð“ hefur verið innleidd víðs vegar í skólum ABC í Asíu og Afríku. Börnunum er kennt markvisst um neikvæðan áhrifamátt og umfang spillingar. Spilling snýst um bjagaðan hugsunarhátt frekar en sókn í peninga og munu komandi kynslóðir alast upp við fræðslu um þessa helstu ástæðu fátæktar og örbirgðar.
Múrsteinabörnin
Hinir bágstöddu eða þeir lágt settu í þjóðfélagsstiganum í Pakistan eiga ekki marga valmöguleika þegar kemur að því að sjá fyrir sér og sínum. Iðulega er um tvo valkosti að ræða, betla á götunum eða þiggja lán frá þeim sem fara fyrir stórum iðnaði í landinu, þ.m.t. múrsteinaverksmiðjum. Þiggi þeir lán bíður þeirra langur og erfiður vinnudagur við að búa til múrsteina úr leir. Yfirleitt skín sólin skært á daginn og fyrir vikið verður leirinn mjög heitur og vinnumenn þurfa að bera múrsteina á milli með berum höndum. Í Sheikhupura héraðinu eru hundruð barna í þrælkunarvinnu og meðferðin á börnunum svo slæm að þeim er ekki heimilt að sækja skóla og vinnudagurinn er alla jafna 16 klukkustundir á dag, sex daga vikunnar.
Fulltrúar frá Rasta Foundation semja við verksmiðjueigendur þegar tækifæri gefst og borga skuldir verkamannanna og leysa þar með börn þeirra úr ánauð (þrælkunarvinnu). Samtökin bjóða svo upp á skóla fyrir börnin þar sem þau fá menntun, mat, skólabúninga og heilsugæslu. Skólinn er í sama þorpi og verksmiðjurnar og þar sem fjölskyldur barnanna búa. Sumar fjölskyldur búa í litlum múrsteina-kofum og aðrar leigja eitt herbergi af verksmiðjueigendum fyrir alla fjölskylduna.
Pakistan
Opinbera nafn Pakistans er “Íslamska lýðveldið Pakistan ” og höfuðborgin er Islamabad. Nafnið Pakistan merkir „land hinna hreinu“ á úrdú sem er opinbert tungumál landsins. Íbúafjöldi Pakistans er yfir 246 milljónir manns miðað við tölur frá árinu 2026. Það er fimmta fjölmennasta ríki heims og fjölgar íbúum landsins mjög ört. Ólæsi er mikið vandamál en það er mismikið milli svæða, allt frá 10% í höfuðborginni og upp í 72% á mörgum dreifbýlissvæðum. Um 10-15% barna í Pakistan klára ekki grunnskóla. Ólæsi er mikið meðal stúlkna og kvenna. Fátækt er sérstaklega mikil meðal fólks í sveitum landsins. Margar aldir af arðráni í hinum ýmsu myndum hefur skilið íbúana eftir vansæla og bölsýna.
Árangursögur -
Hvað breytist við menntun?
Saga Ribka Boota
Rasta Brick Kiln School
Ribka Boota (RFP-015) ber með sér sögu um seiglu, ábyrgð og óbilandi trú í mótlæti. Sem elsta systkini sjö barna hefur Ribka axlað mikla ábyrgð, sérstaklega eftir fráfall föður síns. Móðir hennar, sem glímir við alvarleg heilsuvandamál, þar á meðal sjónmissi á öðru auga, reiðir sig mjög á styrk hennar og stuðning.
Þrátt fyrir þessar áskoranir hélt Ribka áfram námi sínu af einurð. Hún lauk grunnnámi við Rasta Brick Kiln School árið 2018 og hélt áfram í námi við Peer Bahar Shah College í Sheikhupura, þar sem hún lauk framhaldsskólanámi með góðum árangri.
Í dag starfar Ribka sem kennari við Archer Public School og kennir einnig í kvöldtímum, leggur þannig sitt af mörkum til framfærslu fjölskyldunnar á sama tíma og hún heldur áfram sinni eigin þróun og þjónustu.
Líf hennar endurspeglar orð ritningarinnar: „Allt sem þér gerðuð einum af þessum minnstu… það gerðuð þér mér.“ (Matteusarguðspjall 25:40). Elja Ribku, styrkur og trú eru öðrum innblástur og sýna að jafnvel í erfiðleikum getur von og tilgangur sigrað.
Árangursögur -
Hvað breytist við menntun?
Saga bano
Rasta Brick Kiln School
Bano er skínandi dæmi um hvernig menntun, trú og þrautseigja geta umbreytt lífi. Hún lauk grunnnámi sínu við Rasta Brick Kiln School árið 2018 og hélt áfram í framhaldsskólanám við Peer Bahar Shah College í Sheikhupura.
Ferðalag hennar stoppaði ekki þar. Með hjarta helgað þjónustu steig Bano inn í menntageirann og kenndi við Radiant Grammar School og The Muslim School System. Í dag starfar hún sem kennari í 1. bekk við Rasta Brick Kiln School—sama stað og hennar eigin vegferð hófst.
Líf Bano endurspeglar fyrirheit ritningarinnar: „Fræddu barn um þann veg sem það á að ganga…“ (Orðskviðirnir 22:6). Frá einföldum uppruna hefur hún risið með ákveðni og reisn og orðið fyrirmynd yngri nemenda. Saga hennar snýst ekki aðeins um persónulegan árangur heldur einnig um að gefa til baka—að efla næstu kynslóð með þekkingu, von og trú.

Menntun er mikilvægasti hlekkurinn í að rjúfa vítahring fátæktar
Takk fyrir!
Við munum senda þér reikning í heimabanka innan skamms.
Takk fyrir!
Við munum senda þér reikning í heimabanka innan skamms.
Takk fyrir!
Við munum senda þér reikning í heimabanka innan skamms.





