Filippseyjar

115m

Íbúar í landinu

19%

Eru undir fátæktarmörkum

60%

Eru undir 30 ára

9 ár

Meðalfjöldi ára í skóla

71 ár

Lífslíkur við fæðingu

Aðalstarfssvæði

Rizal

Fjöldi barna studd af abc

550 börn

Aðalstarfssvæði

Naíróbí

Fjöldi barna studd af abc

230 börn

Starfið

ABC banahjálp hóf samstarf við Children´s Mission Philippines (CMP) árið 1990. CMP var stofnað árið 1983 af Sigvard Wallenberg. Árlega fá þúsundir hjálp í gegnum starf samtakanna á Filippseyjum. CMP rekur m.a. forskólann Molfrid Center í Manilla og þar eru börn á aldrinum 4 til 6 ára tekin inn. Þar læra þau að þroska persónuleika sinn, lesa, skrifa, teikna og leika. Þau fá ókeypis menntun, skólabúning, bækur og skóladót, heilsugæslu og heita máltíð. Börnin eru í skólanum fram að fjórða bekk og fara þá í ríkisrekna skóla, sem eru ókeypis upp að 6. bekk.


Skólarnir á Filippseyjum skiptast í ríkisskóla og einkarekna skóla. Náminu er skipt í 4 stig; forskóli til þriðja bekkjar (grunnstig), bekkir 4-6 (grunnskóli), bekkir 7-10 (gagnfræðaskóli) og bekkir 11-12 (æðra stig gagnfræðaskóla). Síðan tekur við menntaskóli (college) sem er að jafnaði 4-5 ár. Háskóli býður svo upp á margar námsleiðir sem eru mislangar.

Kort sem sýnir Asíu í bláu, Rússland og Kína merkt og Suðaustur-Asía auðkennd í rauðu.

Ókeypis menntun

Á Filippseyjum er menntun í ríkisskólum ókeypis allt upp í 6. bekk eða 12 ára bekk en mörg börn fara ekki í skóla. Ástæðan fyrir því er að foreldrar geta ekki borgað kostnaðinn, sem fylgir skólagöngunni; svo sem mat, strætó í skólann, bækur og þess háttar. Mikill fjöldi fátækra barna hættir því í skóla. Upp til hópa eru skólastofur troðfullar og algengt er að fjöldi barna í bekk séu 65-95 talsins. Skólabækur eru af skornum skammti og mikill skortur er á kennurum í ríkisskólum. Mikið hlutfall barna ljúka ekki grunn- og/eða gagnfræðiskóla.

Ríkisreknir skólar hefja skólaönn í júní og klára í mars mánuði. Einkareknir skólar hefja störf í júlí og klára í apríl mánuði.


Fjölskyldur og aðstæður

Fjölskyldur barnanna sem CMP og ABC styðja eru mjög fátækar. Þær búa flestar við ruslahaugana í Manilla í hreysum byggðum úr spítnarusli með bárujárnsþaki og moldargólfi. Fæstir hafa rennandi vatn né rafmagn.


Eldunaraðstöðu er yfirleitt deilt með mörgum öðrum fjölskyldum og þvotturinn er þveginn í húsasundum. Kynferðisleg misnotkun er mjög algeng í Manilla. Fæstar þessara fjölskyldna hafa efni á því að senda börnin sín í skóla því allur peningur, sem fjölskyldan vinnur sér inn, fer í mat. Með stuðningi frá styrktaraðilum frá Íslandi fá börnin og fjölskyldur þeirra mánaðarlega upphæð sem notuð er til að greiða fyrir skólabúning, skólabækur, mat, flutning (strætó) í og úr skóla og jólagjafir fyrir alla fjölskylduna. Auk þess fá háskólanemendur ákveðna upphæð í byrjun hverrar annar sem borgar hluta skólagjaldanna.

Filippseyjar

Lýðveldið Filippseyjar er ríki í Suðaustur-Asíu og fimmta stærsta eyríki heims sem samanstendur af 7.641 eyju. Filippseyjar fengu sjálfstæði frá Bandaríkjunum árið 1946 eftir að hafa verið hernumdar af Japönum í seinni heimsstyrjöldinni. Í landinu búa um það bil 113 milljónir manna og er það því tólfta fjölmennasta í heimi. Filippseyjar eru þriðja fjölmennasta eyríki heims og er þéttleiki landsins álíka mikill og í Japan. Þar eru töluð 178 tungumál en nokkur þeirra eru einungis töluð af mjög fámennum hópum manna. Opinber tungumál eru filippínska og enska.


Höfuðborgin Manilla er átjánda fjölmennasta borg heims. Meðalhitastigið er um 27-28 gráður á celcíus og loftið mjög rakt . Það eru þrjár árstíðir; heiti tíminn eða sumar frá mars til maí, regntíminn frá júní til nóvember og kaldi tíminn frá desember til febrúar


Stephenson Reyes

Stephenson Reyes er einn af þeim sem hafa notið stuðnings ABC barnahjálpar í gegnum styrktarverkefnið í Filippseyjum. Hann hefur verið hluti af verkefninu í um 17–19 ár, allt frá leikskólaaldri.


Stuðningur styrktarforeldra hans skipti sköpum fyrir líf hans. Hann fékk reglulegan fjárhagsstuðning, skólagögn og jólagjafir sem gerðu honum kleift að einbeita sér að námi og ná árangri. Hann var stöðugt meðal fremstu nemenda og lauk að lokum háskólanámi í viðskiptafræði (BS Entrepreneurship) með heiðursviðurkenningu (Cum Laude).


Á háskólaárunum þurfti hann að vinna með námi, m.a. hjá McDonald’s, en með þrautseigju tókst honum að ljúka námi. Í dag er hann að hefja nýjan kafla sem stjórnandi hjá McDonald’s, eftir að hafa unnið sig upp frá almennu starfi.


Stephenson lýsir djúpu þakklæti til styrktarforeldra sinna og ABC barnahjálpar. Hann leggur áherslu á að stuðningurinn hafi ekki aðeins verið fjárhagslegur heldur hafi hann gefið honum von, sjálfstraust og tækifæri til að byggja sér framtíð.


Saga hans sýnir hvernig langtímastuðningur getur umbreytt lífi barns og hann stefnir nú sjálfur að því að gefa til baka og hjálpa öðrum í framtíðinni.

Táknmynd af bláu og rauðu hjartalaga viðvörunarborða

Menntun er mikilvægasti hlekkurinn í að rjúfa vítahring fátæktar

Vinsamlegast sláðu inn nafn
Vinsamlegast sláðu inn gilt netfang
Vinsamlegast sláðu inn kennitölu
Vinsamlegast sláðu inn símanúmer
Vinsamlegast sláðu inn heimilisfang
Samtals á mánuði