Þróunarsamvinna

Verkefni styrkt af
Utanríkisráðuneytinu

Kvennadeild opnuð í norður Úganda 2022

Fengum styrk frá Utanríkisráðneytinu til að lagfæra og breyta húsnæði til að opna kvennadeild til að bæta aðgengi og gæði mæðraþjónustufyrir mæður í dreifbýlinu í kringum Rackoko.

Malaríudeild í norður Úganda 2023

Fengum styrk frá Utanríkisráðuneytinu til að byggja upp malaríudeild í húsnæði samtakanna sem hafði skemmst í óveðri nokkrum árum áður.

Opnun klæðsekeraskóla í Pakistan 2023

Fengum styrk frá Utanríkisráðuneytinu til að opna klæðskeraskóla fyrir ungar konur í nágreni skólans.

Opnun heimavista í norður Úganda 2024

Fengum styrk frá Utanríkisráðurneytinu til að endurbyggja heimavist á skólalóð samtakanna þar sem áður voru skólastofur.

Nýjar skólastofur við ABC skólann í Rackoko 2025

Haustið 2025 fékk ABC barnahjálp styrk frá Utanríkisráðuneyti Íslands til uppbyggingar nýrra skólastofa við ABC skólann í Rackoko í norður Úganda. Gamla skólahúsið hafði hrunið í óveðri.


Verkefnið var mikilvægt skref í að bæta námsaðstöðu fyrir börn á svæðinu. Með nýju byggingunni skapast betra og öruggara námsumhverfi, minni þrengsli í kennslustofum og aukin tækifæri fyrir fleiri börn til skólagöngu.


Verkefnið var unnið í nánu samstarfi við heimafólk og samstarfsaðila ABC í Úganda, með áherslu á sjálfbærni og langtímaáhrif fyrir samfélagið í heild.

Skólastofur í Búrkína Fasó 2025

Í samstarfi við Utanríkisráðuneytið réðst ABC Barnahjálp í byggingu þriggja hæða viðbyggingar við framhaldsskólann í Bobo-Dioulasso í Búrkína Fasó.


Viðbyggingin bætir verulega námsaðstöðu skólans og skapar rými fyrir fleiri nemendur. Verkefnið er mikilvægur liður í að efla aðgengi barna og ungmenna á svæðinu að góðri menntun.