Guðjón hleypur heilt maraþon til styrktar ABC barnahjálp
Guðjón Norðfjörð hefur ákveðið að hlaupa heilt maraþon í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka laugardaginn 22. ágúst, þar sem hann safnar áheitum til styrktar uppbyggingu heilbrigðisþjónustu við ABC-skólann í Bobo-Dioulasso í Búrkína Fasó
Arna, eiginkona Guðjóns, bar mikinn hlýhug til ABC-starfsins í Búrkína Fasó. Hún lést fyrr á árinu og fyrir útför hennar var óskað eftir því að blóm og kransar yrðu afþakkaðir og þess í stað yrði starfið styrkt í minningu hennar. Fjölmargir brugðust vel við þeirri beiðni og söfnuðust um 1,3 milljónir króna. ABC barnahjálp færir öllum sem lögðu málefninu lið innilegar þakkir.
Nú er stefnt að því að efla heilsurými fyrir börnin í ABC-skólanum og byggja upp heilbrigðisþjónustu sem nýtist bæði nemendum skólans og íbúum hverfisins.
Heilbrigðisþjónustan verður byggð í minningu Örnu og mun bera nafnið Arna Heilbrigðisþjónusta.
Áætlað er að uppbyggingin kosti um sjö milljónir króna og því er stuðningur almennings afar mikilvægur. Með áheiti á Guðjón getur þú lagt þitt af mörkum til þess að þessi mikilvæga heilbrigðisþjónusta verði að veruleika.
Við hvetjum öll til að styðja Guðjón í þessu krefjandi og fallega verkefni – hvort sem er með áheiti, því að deila söfnuninni eða hvetja aðra til þátttöku.

aðrar fréttir














