Tölvukennsla styrkir framtíðarmöguleika nemenda í Kenía
Tölvukennsla er mikilvægur þáttur í starfi MCE í Kenía og lögð er rík áhersla á að efla stafræna færni nemenda. Á laugardögum eru haldin sérstök námskeið þar sem nemendur fá tækifæri til að kynnast tölvum, læra grunnatriði í tölvunotkun og bæta innsláttarhæfni sína. Kennslan eykur sjálfstraust nemenda og hjálpar þeim að nýta sér stafræna tækni á öruggari og markvissari hátt.
Nemendur taka jafnframt þátt í Tutor Web námi þar sem þeir vinna sér inn stig með námi og verkefnavinnu. Stigunum geta þeir síðan breytt í peningaverðmæti sem þeir nýta til að kaupa nauðsynjavörur eins og hreinlætisvörur, ritföng, fatnað eða annað sem þeir þurfa á að halda. Þannig læra þeir mikilvæga þætti fjármálalæsis,
markmiðasetningar og ábyrgðar í eigin ákvörðunum.
Hluti nemenda hefur einnig fengið spjaldtölvur sem auðvelda aðgang að náminu og gefa þeim tækifæri til að efla stafræna færni sína enn frekar. Markmiðið er að undirbúa börnin betur fyrir áframhaldandi nám og auka möguleika þeirra til framtíðar í sífellt tæknivæddari heimi.
aðrar fréttir














