Saumþjálfun hjá Home of Peace byggir upp sjálfstæði einstaklinga
Home of Peace í Bangladesh veitir nemendum í 6.–10. bekk saumþjálfun með það að markmiði að efla sjálfstæði og undirbúa þá fyrir framtíðarstörf. Með 292 nemendum (183 stúlkur og 109 drengir) fer þjálfunin fram í litlum hópum.
Þessi færni hjálpar nemendum að styðja við eigið nám, leggja sitt af mörkum til tekna fjölskyldunnar og opnar þeim leiðir til starfa í fatasaumi eða fatahönnun—sem gefur þeim von um bjartari framtíð.
aðrar fréttir

Eftir Hrönn ABC
•
2. september 2026
ABC Barnahjálp hefur fjármagnað kaup á sérútbúnum hjólastól fyrir Bilal Asif, nemanda við Rasta Foundation Brick Kiln School í Pakistan. Hingað til hefur verið erfitt fyrir Bilal að komast í skólann þar sem hann hefur þurft að reiða sig á að aðrir beri hann milli staða. Nýi hjólastóllinn mun því hafa mikil áhrif á daglegt líf hans, auðvelda honum að komast til og frá skóla og veita honum aukið sjálfstæði og öryggi. Bilal er afar ánægður með nýja hjólastólinn og þakklátur fyrir stuðninginn. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hvernig stuðningur sem þessi getur haft bein og raunveruleg áhrif á líf barns – og um leið tryggt betra aðgengi þess að menntun. Við þökkum öllum stuðningsaðilum ABC Barnahjálpar sem gera okkur kleift að veita börnum eins og Bilal stuðning þegar þörfin er mest.

Eftir Hrönn ABC
•
24. ágúst 2026
FRÁBÆR ÁRANGUR UM HELGINA Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram laugardaginn 22. ágúst og átti ABC Barnahjálp frábæran hóp hlaupara sem lagði starfinu lið. Alls söfnuðust 3.864.811 krónur frá 336 aðilum til styrktar ABC barnastarfi. Sérstaklega ber að nefna Guðjón Norðfjörð, sem hljóp heilt maraþon og safnaði 2.828.745 kr. Söfnun hans tengist uppbyggingu nýrrar heilbrigðisþjónustu við ABC-skólann í Bobo-Dioulasso, sem mun bera nafnið Arna Heilbrigðisþjónusta, til minningar um eiginkonu hans, Örnu Hansen. Synir þeirra, Nökkvi og Ísak, hlupu einnig ásamt vini sínum Össa til stuðnings verkefninu. Fleiri lögðu ABC lið í hlaupinu, þar á meðal Sigurleif Sigurðardóttir, Ívar Ísak Guðjónsson, Jón Sverrir Friðriksson og Milla Rautiainen, auk annarra sem völdu að hlaupa fyrir ABC Barnahjálp. Heilsugæslan Arna mun þjóna bæði börnum ABC-skólans og íbúum nærliggjandi samfélags og bæta aðgengi þeirra að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Við færum öllum hlaupurunum okkar, þeim 336 aðilum sem styrktu söfnunina og öllum þeim sem hvöttu hlauparana áfram okkar innilegustu þakkir. Hvert skref og hvert áheit skiptir máli.

17. ágúst 2026
Guðjón Norðfjörð hyggst hlaupa heilt maraþon til styrktar uppbyggingu heilbrigðisþjónustu við ABC-skólann í Bobo-Dioulasso í Búrkína Fasó. Þjónustan mun nýtast bæði börnum í skólanum og íbúum hverfisins. Uppbyggingin er þegar hafin og segir Guðjón tæpar tvær milljónir króna hafa safnast. Áætlað er að um sjö milljónir króna þurfi til að koma aðstöðunni upp en að því loknu þarf að finna styrktaraðila til að styðja við reksturinn. Heilbrigðisþjónustan mun bera nafnið Arna Heilbrigðisþjónusta, til minningar um Örnu Hansen, eiginkonu Guðjóns. Mikil hlaupafjölskylda Í samtali við mbl.is segist Guðjón hafa stundað langhlaup í mörg ár. Hann hefur hlaupið nokkur heil maraþon og mörg hálfmaraþon auk þess að hafa lokið nokkrum hálfum járnkörlum og tveimur heilum. Í júlí hljóp hann jafnframt 55 kílómetra Laugavegshlaupið og þá í þriðja skiptið. Langhlaup og þríþrautir hafa raunar lengi verið sameiginlegt áhugamál hjá fjölskyldunni. Árið 2022 tók fjölskyldan þátt í járnkarli á Ítalíu þar sem Guðjón, börn hans Ísak, Nökkvi og Ísold og tengdasonurinn Sveinn Þráinn Guðmundsson luku heilum járnkarli og Arna Hansen, eiginkona Guðjóns, lauk hálfum.











