Eftir Hrönn ABC
•
13. október 2026
,,Ég hef alltaf litið á þetta sem mikla náð frá Guði” Viðtal við Rita Sanou, fyrrverandi nemanda ABC-skólans í Búrkína Fasó. Jóhanna Sólrún Norðfjörð, stjórnarformaður ABC skólans í Búrkína Fasó, ræddi við Ritu um skólagöngu hennar, minningar frá ABC-skólanum, stuðninginn frá Íslandi og framtíðardrauma hennar. Rita Sanou er 25 ára gömul og hefur lokið bakkalárgráðu í líffræðilegum rannsóknum, gæðatryggingu og gæðaeftirliti. Hún býr í dag hjá móðurbróður sínum ásamt tveimur konum og átta drengjum. Rita var aðeins sjö ára gömul þegar hún hóf skólagöngu sína í ABC-skólanum árið 2008 og var hún ein af fyrstu nemendum skólans. Síðan þá hefur hún gengið í gegnum bæði gleði og sorgir, en stuðningurinn sem hún fékk í gegnum ABC skólann hefur haft mikil áhrif á líf hennar og framtíð. Rita, þegar þú hugsar til baka til áranna þinna í ABC-skólanum, hvað stendur þá helst upp úr í minningunni? „Ég á svo margar góðar minningar frá þessum árum. Ég man sérstaklega eftir mömmu Trédi, eiginkonu Tonton Eli, sem kenndi okkur orð Guðs. Ég man líka vel eftir frímínútunum. Í skólanum var stórt svæði þar sem við sátum saman á mottum, lékum okkur, spjölluðum og áttum góðar stundir í samfélagi hvert við annað. Þetta voru mjög ánægjulegar stundir. Það sem ég sakna mest eru leikirnir, samtölin og stundirnar þegar við hlustuðum saman á orð Guðs á hverju fimmtudagskvöldi í skólagarðinum. Ég man líka vel eftir ferðunum sem voru skipulagðar fyrir okkur með GBS, Biblíuhópi skólans. Í þessum ferðum lærðum við að skilja margt betur varðandi orð Guðs, en við áttum líka góðar stundir saman þar sem við gátum slakað á og notið samfélagsins. Ég sakna þessara stunda mjög mikið. Allir kennararnir og allt starfsfólk ABC höfðu jákvæð áhrif á mig. Ég lærði eitthvað af hverju og einu þeirra. Ég man þó sérstaklega eftir mömmu Naomie. Hún útbjó svo marga dýrindisrétti fyrir okkur. Ég man líka eftir öllum góðu ráðunum sem hún gaf mér og blessunarorðunum sem hún talaði yfir mig í hvert sinn sem við vorum saman.“