Nytjamarkaðurinn opnar á nýjum stað
Þann 6. nóvember varð alvarlegur bruni í húsnæði Nytjamarkaðar ABC að Smiðjuvegi 2. Eldurinn olli miklu tjóni og eyðilagðist allt inni á markaðinum.
Nytjamarkaðurinn er ein mikilvægasta stoð hjálparstarfsins.
Starfsfólk og sjálfboðaliðar hafa unnið hreint þrekivirki við að hreinsa út úr húsnæðinu og farga öllu sem þar var. Erum við öllum afsakaplega þakklát sem að því komu með einum eða öðrum hætti. Við höfum upplifað mjög mikla velvild, hjálpsemi og fórnfýsi frá einstaklingum og fyrirtækjum á þessum erfiða tíma.
Ný staðsetning og vörumóttaka
Nytjamarkaðurinn hefur nú fengið spennandi nýtt húsnæði að Faxafeni 14 og starfsfólk og sjálfboðaliðar eru klárir í slaginn!
Á morgun miðvikudaginn 18. nóvember opna þau vörumótökuna en inngangur í hana er bakvið húsið.
Tekið verður með þökkum á móti til dæmis heilum og hreinum fatnaði, búsáhöldum, leikföngum, raftækjum, bókum, skrautmunum, jólaskrauti og minni húsgögnum.
Eins og staðan er núna er þó ekki hægt að taka á móti stærri húsgögnum eins og sófum og rúmum.
Margt smátt gerir eitt risastórt!
Við stefnum svo á að opna markaðinn sjálfan á næstu dögum og hlökkum til að taka á móti ykkur þar.
Á þessum erfiðu tímum skiptir stuðningur ykkar okkur ómetanlega miklu máli. Með ykkar hjálp getum við byggt markaðinn upp á ný og haldið áfram að styðja börn til betra lífs.
Hafir þú tök á að styðja uppbyggingu Nytjamarkaðarins geturðu lagt þitt af mörkum með því að leggja inn á reikning okkar: 690688-1589 / 0537-26-6906
aðrar fréttir













