Bruni í Nytjamarkaði okkar á Smiðjuvegi
Kæru vinir og velunnarar ABC
Í nótt varð alvarlegur bruni í húsnæði Nytjamarkaðar ABC að Smiðjuvegi 2. Eldurinn olli miklu tjóni og markaðurinn er ónothæfur sem stendur. Þetta er mikið áfall fyrir okkur öll - starfsfólk, sjálfboðaliða, viðskiptavini og ekki síst börnin sem njóta stuðnings ABC barnahjálpar.
Nytjamarkaðurinn er ein mikilvægasta stoð hjálparstarfsins. Nú tekur við óvissa og krefjandi uppbygging, en við stefnum að því að opna verslunina aftur eins fljótt og auðið er. Á þessum erfiðu tímum skiptir stuðningur ykkar okkur ómetanlega miklu máli. Með ykkar hjálp getum við byggt markaðinn upp á ný og haldið áfram að styðja börn til betra lífs.
Hafir þú tök á að styðja uppbyggingu Nytjamarkaðarins geturðu lagt þitt af mörkum með því að leggja inn á reikning okkar: 690688-1589 / 0537-26-6906
Þú getur einnig stutt starfið með kaupum á miða í jólahappdrætti ABC. Miðinn kostar 1.500 kr. og hægt er að kaupa hann með því að smella hér. Aðeins verður dregið úr seldum miðum.
Verslun okkar á Laugavegi er áfram opin og við tökum hlýlega á móti ykkur þar.
Takk fyrir hlýhuginn, stuðninginn og alla hjálpina. Saman höldum við áfram að hjálpa börnum til betra lífs.


aðrar fréttir













