Deila þessari grein

ABC drengur fékk loksins nauðsynlega aðgerð


Í júní var ekið á dreng úr ABC-starfinu í Búrkína Fasó, ökumaðurinn var ölvaður. Myndir sem teknar voru eftir slysið sýndu greinileg beinbrot, en ekkert var gert og fékk hann ekki þá meðferð sem hann þurfti. Drengurinn heitir Hamido og hefur farið í gegnum ABC skólann og stundar núna háskólanám.


Þegar Jóhanna og Haraldur, sem fara fyrir ABC-skólanum, komu til Búrkína Fasó núna í september lok sáu þau hversu illa hann var farinn og ákváðu að leita frekari aðstoðar. Ný myndataka staðfesti að aðgerð væri nauðsynleg.

Haraldur fór með honum á Centre Médical La Grâce, sjúkrahús í útjaðri Bobo-Dioulasso sem rekið er af sænsku hjálparsamtökunum Västafrikahjälpen.

Kostnaður við aðgerðina var um 200 þúsund íslenskar krónur. Hjálparsjóður ABC barnahjálpar, styrktaraðili drengsins og fleiri eru að leggja sitt af mörkum til að standa straum af kostnaðinum.


Aðgerðin hefur nú farið fram og árangurinn er gleðilegur. Drengnum líður mun betur og er þegar farinn að geta stigið í fótinn á ný.


Fyrsta beinbrots myndin var tekin í júní og næsta sýnir beinbrotið núna í byrjum október.


Við erum innilega þakklát öllum sem hafa lagt þessari mikilvægu hjálp lið. Enn er hægt að taka þátt og hjálpa okkur að standa straum af kostnaði við aðgerðina með því að styrkja Hjálparsjóð  ABC Barnahjálpar, hér er linkur á sjóðinn.



aðrar fréttir

Eftir Hrönn ABC • 2. september 2026
ABC Barnahjálp hefur fjármagnað kaup á sérútbúnum hjólastól fyrir Bilal Asif, nemanda við Rasta Foundation Brick Kiln School í Pakistan. Hingað til hefur verið erfitt fyrir Bilal að komast í skólann þar sem hann hefur þurft að reiða sig á að aðrir beri hann milli staða. Nýi hjólastóllinn mun því hafa mikil áhrif á daglegt líf hans, auðvelda honum að komast til og frá skóla og veita honum aukið sjálfstæði og öryggi. Bilal er afar ánægður með nýja hjólastólinn og þakklátur fyrir stuðninginn.  Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hvernig stuðningur sem þessi getur haft bein og raunveruleg áhrif á líf barns – og um leið tryggt betra aðgengi þess að menntun. Við þökkum öllum stuðningsaðilum ABC Barnahjálpar sem gera okkur kleift að veita börnum eins og Bilal stuðning þegar þörfin er mest.
Eftir Hrönn ABC • 24. ágúst 2026
FRÁBÆR ÁRANGUR UM HELGINA Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram laugardaginn 22. ágúst og átti ABC Barnahjálp frábæran hóp hlaupara sem lagði starfinu lið. Alls söfnuðust 3.864.811 krónur frá 336 aðilum til styrktar ABC barnastarfi. Sérstaklega ber að nefna Guðjón Norðfjörð, sem hljóp heilt maraþon og safnaði 2.828.745 kr. Söfnun hans tengist uppbyggingu nýrrar heilbrigðisþjónustu við ABC-skólann í Bobo-Dioulasso, sem mun bera nafnið Arna Heilbrigðisþjónusta, til minningar um eiginkonu hans, Örnu Hansen. Synir þeirra, Nökkvi og Ísak, hlupu einnig ásamt vini sínum Össa til stuðnings verkefninu. Fleiri lögðu ABC lið í hlaupinu, þar á meðal Sigurleif Sigurðardóttir, Ívar Ísak Guðjónsson, Jón Sverrir Friðriksson og Milla Rautiainen, auk annarra sem völdu að hlaupa fyrir ABC Barnahjálp. Heilsugæslan Arna mun þjóna bæði börnum ABC-skólans og íbúum nærliggjandi samfélags og bæta aðgengi þeirra að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Við færum öllum hlaupurunum okkar, þeim 336 aðilum sem styrktu söfnunina og öllum þeim sem hvöttu hlauparana áfram okkar innilegustu þakkir. Hvert skref og hvert áheit skiptir máli.
17. ágúst 2026
Guðjón Norðfjörð hyggst hlaupa heilt maraþon til styrktar uppbyggingu heilbrigðisþjónustu við ABC-skólann í Bobo-Dioulasso í Búrkína Fasó. Þjónustan mun nýtast bæði börnum í skólanum og íbúum hverfisins. Uppbyggingin er þegar hafin og segir Guðjón tæpar tvær milljónir króna hafa safnast. Áætlað er að um sjö milljónir króna þurfi til að koma aðstöðunni upp en að því loknu þarf að finna styrktaraðila til að styðja við reksturinn. Heilbrigðisþjónustan mun bera nafnið Arna Heilbrigðisþjónusta, til minningar um Örnu Hansen, eiginkonu Guðjóns. Mikil hlaupafjölskylda Í samtali við mbl.is segist Guðjón hafa stundað langhlaup í mörg ár. Hann hefur hlaupið nokkur heil maraþon og mörg hálfmaraþon auk þess að hafa lokið nokkrum hálfum járnkörlum og tveimur heilum. Í júlí hljóp hann jafnframt 55 kílómetra Laugavegshlaupið og þá í þriðja skiptið. Langhlaup og þríþrautir hafa raunar lengi verið sameiginlegt áhugamál hjá fjölskyldunni. Árið 2022 tók fjölskyldan þátt í járnkarli á Ítalíu þar sem Guðjón, börn hans Ísak, Nökkvi og Ísold og tengdasonurinn Sveinn Þráinn Guðmundsson luku heilum járnkarli og Arna Hansen, eiginkona Guðjóns, lauk hálfum.
Maður brosandi í barong með litlum fána á fjölmennum viðburði innanhúss
9. júní 2026
Með 15 ára stuðningi ABC barnahjálpar lauk Kenneth BSc í afbrotafræði og stóðst löggildingarpróf. Nú stefnir hann á starf hjá Tri-Bureau á Filippseyjum.
Útskrifaður í svörtum kjól með gulum stola og orðu á gráum bakgrunni í vinnustofu
9. júní 2026
Með stuðningi ABC barnahjálpar lauk Stephenson háskólanámi með heiðri og er nú stjórnandi hjá McDonald's. Lestu innblásna sögu hans um þrautseigju.
Kona brosir við vinnuborð í fataverkstæði, heldur á bláu efni með saumaborðum og verkamönnum í bakgrunni.
9. júní 2026
Melena ólst upp í fátækt en með stuðningi Home of Peace lauk hún hjúkrunarnámi og starfar nú sem hjúkrunarfræðingur. Lestu innblásna sögu hennar.
Andlitsmynd af manneskju í gulum bol og svörtum trefil á gullnum bakgrunni.
9. júní 2026
Ribka Boota axlaði mikla ábyrgð sem elsta systkini sjö barna en lét ekki mótlæti stoppa sig. Í dag er hún kennari og fyrirmynd fyrir aðra.
Andlitsmynd af manneskju í hvítum höfuðklút og röndóttri skyrtu, snúið fram á við með hlutlausu svipbrigði
9. júní 2026
Bano lauk námi við Rasta Brick Kiln School og kennir nú 1. bekk á sama stað. Saga hennar um menntun, trú og þrautseigju er innblástur fyrir aðra.
Maður í svörtum útskriftarkjól og húfu með gulllituðu belti stendur upp við múrsteinsvegg.
5. júní 2026
Fjórir fyrrverandi nemendur luku starfs- og færniþjálfun á vegum International Youth Fellowship og eru nú betur búin undir nám og vinnumarkað.
Fólk að nota skrifborðsskanna á rauðu borði í látlausu skrifstofuherbergi
5. júní 2026
Læknar og hjúkrunarfræðingar frá United Christian Hospital buðu upp á heilsufarsskoðanir, blóðþrýstingsmælingar og lyf fyrir nemendur og fjölskyldur í Lahore.
Show More