Gleði og eftirvænting þegar klæðskeraskólinn í Pakistan tók aftur til starfa!
UNGAR KONUR FÁ NÝTT TÆKIFÆRI
Það er mikil gleði hjá okkur í ABC barnahjálp því kennsla er nú formlega hafin að nýju í klæðskeraskólanum okkar í Pakistan!
Á myndunum sem okkur bárust frá Pastor Chand má sjá glaðar og áhugasamar ungar konur við saumavélarnar ásamt kennaranum sínum. Þær eru þegar byrjaðar að sauma og taka fyrstu skrefin í að læra nýja iðn sem getur breytt framtíð þeirra.
Skólinn er staðsettur í Sheikhupura í Pakistan, þar sem margar fjölskyldur búa við erfiðar aðstæður og hafa takmarkaða möguleika á atvinnu og menntun. Markmið verkefnisins er að veita 15 ungum konum tækifæri til að læra saumaskap og öðlast færni sem getur hjálpað þeim að afla eigin tekna og styðja fjölskyldur sínar.
Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu mikinn áhuga og metnað nemendurnir sýna strax í upphafi.
Nú leitum við að fyrirtæki eða einstaklingum sem hafa áhuga á að styrkja rekstur skólans.
Rekstrarkostnaðurinn er um 55.000 krónur á mánuði, en með þeim stuðningi er hægt að veita þessum ungu konum dýrmæta menntun og tækifæri til betri framtíðar.
Kannski vilt þú eða þitt fyrirtæki taka þátt í þessu fallega verkefni?
Hafðu samband hs@abc.is
Saman getum við skapað tækifæri sem breyta lífi!
aðrar fréttir





















