Saga Ritu Sanou | Útskrift
,,Ég hef alltaf litið á þetta sem mikla náð frá Guði”
Viðtal við Rita Sanou, fyrrverandi nemanda ABC-skólans í Búrkína Fasó.
Jóhanna Sólrún Norðfjörð, stjórnarformaður ABC skólans í Búrkína Fasó, ræddi við Ritu um skólagöngu hennar, minningar frá ABC-skólanum, stuðninginn frá Íslandi og framtíðardrauma hennar.
Rita Sanou er 25 ára gömul og hefur lokið bakkalárgráðu í líffræðilegum rannsóknum, gæðatryggingu og gæðaeftirliti. Hún býr í dag hjá móðurbróður sínum ásamt tveimur konum og átta drengjum. Rita var aðeins sjö ára gömul þegar hún hóf skólagöngu sína í ABC-skólanum árið 2008 og var hún ein af fyrstu nemendum skólans. Síðan þá hefur hún gengið í gegnum bæði gleði og sorgir, en stuðningurinn sem hún fékk í gegnum ABC skólann hefur haft mikil áhrif á líf hennar og framtíð.
Rita, þegar þú hugsar til baka til áranna þinna í ABC-skólanum, hvað stendur þá helst upp úr í minningunni?
„Ég á svo margar góðar minningar frá þessum árum. Ég man sérstaklega eftir mömmu Trédi, eiginkonu Tonton Eli, sem kenndi okkur orð Guðs. Ég man líka vel eftir frímínútunum. Í skólanum var stórt svæði þar sem við sátum saman á mottum, lékum okkur, spjölluðum og áttum góðar stundir í samfélagi hvert við annað. Þetta voru mjög ánægjulegar stundir.
Það sem ég sakna mest eru leikirnir, samtölin og stundirnar þegar við hlustuðum saman á orð Guðs á hverju fimmtudagskvöldi í skólagarðinum. Ég man líka vel eftir ferðunum sem voru skipulagðar fyrir okkur með GBS, Biblíuhópi skólans. Í þessum ferðum lærðum við að skilja margt betur varðandi orð Guðs, en við áttum líka góðar stundir saman þar sem við gátum slakað á og notið samfélagsins. Ég sakna þessara stunda mjög mikið.
Allir kennararnir og allt starfsfólk ABC höfðu jákvæð áhrif á mig. Ég lærði eitthvað af hverju og einu þeirra. Ég man þó sérstaklega eftir mömmu Naomie. Hún útbjó svo marga dýrindisrétti fyrir okkur. Ég man líka eftir öllum góðu ráðunum sem hún gaf mér og blessunarorðunum sem hún talaði yfir mig í hvert sinn sem við vorum saman.“
Fyrir Ritu og fjölskyldu hennar hafði það mikla þýðingu að hún fengi tækifæri til að ganga í skóla
„Að kunna að lesa og skrifa er nauðsynlegt fyrir alla í þessum heimi. Þess vegna hafði það mjög mikla þýðingu fyrir mig og fjölskyldu mína að ég skyldi fá þetta tækifæri“ sagði Rita.
En skólagangan var ekki alltaf auðveld fyrir hana. Árið 2020, þegar Rita var í næstsíðasta bekk framhaldsskóla, varð hún fyrir mikilli sorg þegar móðir hennar lést.
„Eftir að mamma dó veiktist ég sjálf. Þetta var mjög erfiður tími og ég fór að hugsa með mér að það væri ekki lengur þess virði að halda náminu áfram. Allt sem ég hafði gert, hafði ég gert fyrir mömmu mína, en það var mikil hvatning frá skólanum.”
Á þessum árum áttir þú styrktaraðila á Íslandi sem studdi þig til náms. Vissir þú af þessum stuðningi og hvaða þýðingu hafði hann fyrir þig?
„Já, ég vissi að ég ætti styrktaraðila á Íslandi. Það var mikil náð fyrir mig að vita að það væri manneskja sem þekkti mig ekki persónulega og var ekki einu sinni úr fjölskyldu minni, en hafði samt ákveðið að styðja mig og leggja sitt af mörkum til þess að mér gengi vel. Ég hef alltaf litið á þetta sem mikla náð frá Guði, því það eru ekki allir svo heppnir að fá svona tækifæri “ sagði Rita.
Rita er sannfærð um að líf hennar hefði getað orðið allt annað án
ABC-skólans og stuðningsins frá Íslandi
„Ég hefði kannski haft möguleika á að ganga í skóla, en ég hefði átt í gífurlegum erfiðleikum með að finna það fjármagn sem þurfti til að halda náminu áfram. Ég held jafnvel að ég væri ekki með bakkalárgráðu í dag ef ég hefði ekki fengið þennan stuðning.“
Eftir að Rita lauk námi í ABC-skólanum hélt hún áfram námi við Aube Nouvelle-háskólann, þökk sé stuðningi styrktaraðila hennar á Íslandi, sem hélt áfram stuðningi. Í dag hefur hún lokið háskólanámi og starfar sem sölufulltrúi í matvælageiranum, á meðan hún leitar að starfi sem tengist menntun hennar.
Hverju ertu stoltust af í dag og hverjir eru þínir framtíðardraumar?
„Ég er stolt af sjálfri mér fyrir að hafa lokið bakkalárgráðu og fyrir alla þá möguleika sem þessi menntun getur veitt mér. Í dag starfa ég við sölu á matvælum vegna þess að ég þarf að afla mér tekna til að sjá fyrir daglegum þörfum mínum. Ég vonast til að finna gott starf sem tengist menntun minni, sérstaklega á rannsóknarstofu.
Mig dreymir um að fá einn daginn að starfa á stórri rannsóknarstofu, annaðhvort fyrir ríkið eða fyrir frjáls félagasamtök, en draumar mínir takmarkast ekki við að starfa fyrir ríkið. Mig langar líka til að stofna mína eigin rannsóknarstofu einn daginn. Þannig gæti ég haft góðar tekjur og um leið hjálpað fólki sem er í neyð. Og umfram allt langar mig að gleðja styrktaraðila minn og ABC-skólann og gera þau stolt af mér.“
Rita, ef styrktaraðilinn þinn á Íslandi sæti hérna fyrir framan þig í dag, hvað myndir þú vilja segja?
„Mig langar einfaldlega að segja styrktaraðilanum mínum ,,Kærar þakkir”. Mig skortir orð til að lýsa því hversu þakklát ég er fyrir allt sem hann hefur gert fyrir mig. Ég ber svo djúpt þakklæti til hans. Ég bið þess að hann skorti aldrei neitt.“
Þegar Rita lítur til baka og hugsar um litlu sjö ára stúlkuna sem hóf nám í ABC-skólanum árið 2008, sér hún hversu langt hún hefur náð. Hún vill sérstaklega koma því á framfæri hvað stuðningurinn hefur gert fyrir líf hennar.
„Frá því að vera lítil stúlka, sem átti í erfiðleikum, hefur styrktaraðilinn minn gert mig að hamingjusamri og menntaðri ungri konu. Í dag hef ég lokið háskólanámi og hef þá þekkingu og færni sem þarf til að framkvæma rannsóknir í þágu fólks sem er veikt og glímir við alls konar sjúkdóma. Hún hefur gert mig að manneskju sem ég get sjálf verið stolt af og sem fjölskylda mín getur verið stolt af.“
aðrar fréttir

















