ABC barnahjálp í Reykjavíkurmaraþoninu
FRÁBÆR ÁRANGUR UM HELGINA
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram laugardaginn 22. ágúst og átti ABC Barnahjálp frábæran hóp hlaupara sem lagði starfinu lið. Alls söfnuðust 3.864.811 krónur frá 336 aðilum til styrktar ABC barnastarfi.
Sérstaklega ber að nefna Guðjón Norðfjörð, sem hljóp heilt maraþon og safnaði 2.828.745 kr. Söfnun hans tengist uppbyggingu nýrrar heilbrigðisþjónustu við ABC-skólann í Bobo-Dioulasso, sem mun bera nafnið Arna Heilbrigðisþjónusta, til minningar um eiginkonu hans, Örnu Hansen. Synir þeirra, Nökkvi og Ísak, hlupu einnig ásamt vini sínum Össa til stuðnings verkefninu.
Fleiri lögðu ABC lið í hlaupinu, þar á meðal Sigurleif Sigurðardóttir, Ívar Ísak Guðjónsson, Jón Sverrir Friðriksson og Milla Rautiainen, auk annarra sem völdu að hlaupa fyrir ABC Barnahjálp.
Heilsugæslan Arna mun þjóna bæði börnum ABC-skólans og íbúum nærliggjandi samfélags og bæta aðgengi þeirra að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu.
Við færum öllum hlaupurunum okkar, þeim 336 aðilum sem styrktu söfnunina og öllum þeim sem hvöttu hlauparana áfram okkar innilegustu þakkir. Hvert skref og hvert áheit skiptir máli.
aðrar fréttir


















