Deila þessari grein

Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“

Guðjón Norðfjörð hyggst hlaupa heilt maraþon til styrktar uppbyggingu heilbrigðisþjónustu við ABC-skólann í Bobo-Dioulasso í Búrkína Fasó. Þjónustan mun nýtast bæði börnum í skólanum og íbúum hverfisins.

Uppbyggingin er þegar hafin og segir Guðjón tæpar tvær milljónir króna hafa safnast. Áætlað er að um sjö milljónir króna þurfi til að koma aðstöðunni upp en að því loknu þarf að finna styrktaraðila til að styðja við reksturinn.

Heilbrigðisþjónustan mun bera nafnið Arna Heilbrigðisþjónusta, til minningar um Örnu Hansen, eiginkonu Guðjóns.


Mikil hlaupafjölskylda

Í samtali við mbl.is segist Guðjón hafa stundað langhlaup í mörg ár. Hann hefur hlaupið nokkur heil maraþon og mörg hálfmaraþon auk þess að hafa lokið nokkrum hálfum járnkörlum og tveimur heilum. Í júlí hljóp hann jafnframt 55 kílómetra Laugavegshlaupið og þá í þriðja skiptið.

Langhlaup og þríþrautir hafa raunar lengi verið sameiginlegt áhugamál hjá fjölskyldunni. Árið 2022 tók fjölskyldan þátt í járnkarli á Ítalíu þar sem Guðjón, börn hans Ísak, Nökkvi og Ísold og tengdasonurinn Sveinn Þráinn Guðmundsson luku heilum járnkarli og Arna Hansen, eiginkona Guðjóns, lauk hálfum.



Afþökkuðu blóm og kransa

Arna lést 31. maí síðastliðinn. Hún bar mikinn hlýhug til ABC starfsins í Búrkína Fasó að sögn Guðjóns og vildi hún að blóm og kransar yrðu afþökkuð vegna jarðarfarar hennar og í staðinn yrði starfið styrkt í hennar minningu.

Margir urðu við óskinni og söfnuðust um 1,3 milljónir.

„Þetta var hennar ósk,“ segir Guðjón.

„Við vissum svo sem ekkert hvort fólk myndi leggja einhvern pening inn á reikninginn en síðan kom svo mikið inn að við fórum að velta fyrir okkur hvort allur þessi peningur gæti ekki farið í eitt ákveðið verkefni í nafni Örnu.“


Stóð til að stækka heilbrigðisþjónustuna

Guðjón segist hafa stungið upp á að féð yrði nýtt í eitthvað heilbrigðistengt.

„Arna var hjúkrunarfræðingur og átti langan starfsferil innan heilbrigðis- og lyfjageirans. Þegar hún kom til Búrkína Fasó árið 2018 var hún að hjálpa til í þessari litlu heilsugæslu sem starfrækt er þar.“

Jóhanna Sólrún Norðfjörð, systir Guðjóns, sem heldur utan um starfið í Búrkína Fasó í samstarfi við ABC á Íslandi, ásamt eiginmanni sínum Haraldi Pálssyni, benti þá á að það stæði til að stækka heilsugæsluna og að heimamenn vildu efla þjónustuna við börnin.

Í kjölfarið var haft samband við Kadí Sun, framkvæmdastjóra skólans, og aðra sem stýra starfinu í Búrkína Fasó og spurt hvort söfnunarféð gæti runnið til uppbyggingar hei

lbrigðisþjónustunnar og hvort hún mætti bera nafn Örnu. Guðjón segir að því hafi verið afar vel tekið


Lítið sár orðið meiriháttar vandamál

Guðjón segir mikla þörf fyrir bætta heilbrigðisþjónustu á svæðinu en þegar fjölskyldan kom þangað árið 2018 var aðeins lítil heilsugæsla á skólalóðinni.

„Það er ekki beint heilsugæsla þarna heldur lítil aðstaða á skólalóðinni fyrir krakkana þar sem þau geta fengið sárabindi og einhver smá lyf.

Það er mjög algengt hjá krökkum þarna úti að þau kannski detti, meiði sig og fái sár af því eða fái sár eftir bruna, sem er mjög algengt, og svo hafa þau ekki efni á að fara til læknis eða þurfa að labba marga kílómetra. Fyrir vikið er ekkert gert og síðan kemur sýking í sárið. Þá er þetta litla sár, sem getur verið einfalt að laga, orðið meiriháttar vandamál,“ segir hann.


Opin fyrir krakkana og fólkið í hverfinu

Áætlaður kostnaður við uppbygginguna er um sjö milljónir króna að sögn Guðjóns. Hann segir bæði vinnu og efni kosta tiltölulega lítið miðað við það sem við þekkjum hér heima. Með uppbyggingu sem þessari taka þau einnig þátt í atvinnusköpun á svæðinu.

Sótt hefur verið um leyfi hjá yfirvöldum í Búrkína Fasó til að reka heilbrigðisþjónustuna og apótek henni samhliða, segir Guðjón og liggja teikningar fyrir.

„Þannig að þessi heilbrigðisþjónusta er á lóðarmörkunum og hún verður opin fyrir krakkana í skólanum og svo verður hún opin út á götu líka, þannig að fólk í hverfinu getur komið og nýtt aðstöðuna.“


Rúmlega 1.400 börn í skólanum

Skólinn hefur stækkað mikið á undanförnum árum og eru þar nú rúmlega 1.400 börn. Guðjón segir að í kringum skólann hafi jafnframt byggst upp samfélag þar sem börnin fá máltíðir og foreldrar þeirra taka virkan þátt í starfinu og nýta aðstöðuna.

Á skólalóðinni hefur meðal annars verið byggð upp íþrótta- og tómstundaaðstaða auk þess sem borað hefur verið eftir vatni og er þar nú nægt rennandi vatn.



„Fátæktin er víðfeðm“

Guðjón hefur farið nokkrum sinnum til Búrkína Fasó og segir að aðstæðurnar þar hafi mikil áhrif á sig í hvert skipti.

„Ég er búinn að fara nokkrum sinnum og í hvert skipti verð ég jafn sleginn. Það er alveg magnað hvernig fólk lifir þarna. Ég hef séð fátækrahverfi annars staðar í heiminum en fátæktin er víðfeðm í Búrkína Fasó, þetta er í raun allt landið.“

Hann segir innviði víða bágborna og vegina í kringum skólann mikið holótta moldarvegi. Mörg barnanna í skólanum búi jafnframt í leirkofum sem geti skemmst eða hrunið í miklum rigningum.




Guðjón segir að þrátt fyrir erfiðar aðstæður sé hægt að koma miklu til leiðar með þeim fjármunum sem safnast.

„Það er hægt að gera svo mikið fyrir tiltölulega litla fjármuni,“ segir hann.

Hann segist jafnframt þakklátur þeim fjölmörgu sem þegar hafa lagt verkefninu lið.

„Við erum náttúrulega endalaust þakklát fyrir alla þá sem hafa stutt við verkefnið og þá sem lögðu inn peninga hjá ABC í minningu Örnu í tengslum við jarðarförina. Það er bara langur nafnalisti og auðvitað stórkostlegt hvað fólk er viljugt að styðja við og styrkja.“

Hægt er að heita á Guðjón með því að smella á hnappinn hér að neðan og rennur söfnunarféð til ABC barnahjálpar.


Grein skrifuð af Erni Óskari Péturssyni Blöndal fyrir Morgunblaðið.

aðrar fréttir

Eftir Hrönn ABC • 2. september 2026
ABC Barnahjálp hefur fjármagnað kaup á sérútbúnum hjólastól fyrir Bilal Asif, nemanda við Rasta Foundation Brick Kiln School í Pakistan. Hingað til hefur verið erfitt fyrir Bilal að komast í skólann þar sem hann hefur þurft að reiða sig á að aðrir beri hann milli staða. Nýi hjólastóllinn mun því hafa mikil áhrif á daglegt líf hans, auðvelda honum að komast til og frá skóla og veita honum aukið sjálfstæði og öryggi. Bilal er afar ánægður með nýja hjólastólinn og þakklátur fyrir stuðninginn.  Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hvernig stuðningur sem þessi getur haft bein og raunveruleg áhrif á líf barns – og um leið tryggt betra aðgengi þess að menntun. Við þökkum öllum stuðningsaðilum ABC Barnahjálpar sem gera okkur kleift að veita börnum eins og Bilal stuðning þegar þörfin er mest.
Eftir Hrönn ABC • 24. ágúst 2026
FRÁBÆR ÁRANGUR UM HELGINA Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram laugardaginn 22. ágúst og átti ABC Barnahjálp frábæran hóp hlaupara sem lagði starfinu lið. Alls söfnuðust 3.864.811 krónur frá 336 aðilum til styrktar ABC barnastarfi. Sérstaklega ber að nefna Guðjón Norðfjörð, sem hljóp heilt maraþon og safnaði 2.828.745 kr. Söfnun hans tengist uppbyggingu nýrrar heilbrigðisþjónustu við ABC-skólann í Bobo-Dioulasso, sem mun bera nafnið Arna Heilbrigðisþjónusta, til minningar um eiginkonu hans, Örnu Hansen. Synir þeirra, Nökkvi og Ísak, hlupu einnig ásamt vini sínum Össa til stuðnings verkefninu. Fleiri lögðu ABC lið í hlaupinu, þar á meðal Sigurleif Sigurðardóttir, Ívar Ísak Guðjónsson, Jón Sverrir Friðriksson og Milla Rautiainen, auk annarra sem völdu að hlaupa fyrir ABC Barnahjálp. Heilsugæslan Arna mun þjóna bæði börnum ABC-skólans og íbúum nærliggjandi samfélags og bæta aðgengi þeirra að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Við færum öllum hlaupurunum okkar, þeim 336 aðilum sem styrktu söfnunina og öllum þeim sem hvöttu hlauparana áfram okkar innilegustu þakkir. Hvert skref og hvert áheit skiptir máli.
Maður brosandi í barong með litlum fána á fjölmennum viðburði innanhúss
9. júní 2026
Með 15 ára stuðningi ABC barnahjálpar lauk Kenneth BSc í afbrotafræði og stóðst löggildingarpróf. Nú stefnir hann á starf hjá Tri-Bureau á Filippseyjum.
Útskrifaður í svörtum kjól með gulum stola og orðu á gráum bakgrunni í vinnustofu
9. júní 2026
Með stuðningi ABC barnahjálpar lauk Stephenson háskólanámi með heiðri og er nú stjórnandi hjá McDonald's. Lestu innblásna sögu hans um þrautseigju.
Kona brosir við vinnuborð í fataverkstæði, heldur á bláu efni með saumaborðum og verkamönnum í bakgrunni.
9. júní 2026
Melena ólst upp í fátækt en með stuðningi Home of Peace lauk hún hjúkrunarnámi og starfar nú sem hjúkrunarfræðingur. Lestu innblásna sögu hennar.
Andlitsmynd af manneskju í gulum bol og svörtum trefil á gullnum bakgrunni.
9. júní 2026
Ribka Boota axlaði mikla ábyrgð sem elsta systkini sjö barna en lét ekki mótlæti stoppa sig. Í dag er hún kennari og fyrirmynd fyrir aðra.
Andlitsmynd af manneskju í hvítum höfuðklút og röndóttri skyrtu, snúið fram á við með hlutlausu svipbrigði
9. júní 2026
Bano lauk námi við Rasta Brick Kiln School og kennir nú 1. bekk á sama stað. Saga hennar um menntun, trú og þrautseigju er innblástur fyrir aðra.
Maður í svörtum útskriftarkjól og húfu með gulllituðu belti stendur upp við múrsteinsvegg.
5. júní 2026
Fjórir fyrrverandi nemendur luku starfs- og færniþjálfun á vegum International Youth Fellowship og eru nú betur búin undir nám og vinnumarkað.
Fólk að nota skrifborðsskanna á rauðu borði í látlausu skrifstofuherbergi
5. júní 2026
Læknar og hjúkrunarfræðingar frá United Christian Hospital buðu upp á heilsufarsskoðanir, blóðþrýstingsmælingar og lyf fyrir nemendur og fjölskyldur í Lahore.
Kona situr á gólfinu við hliðina á saumavél, efni og skál í einföldu herbergi
5. júní 2026
Rimsha Asif, 18 ára frá Pakistan, lærði saumaskap með stuðningi ABC Barnahjálpar. Nú getur hún unnið heima og stutt fjölskyldu sína til betri framtíðar.
Show More