Stólpar ABc barnahjálpar

Táknmynd af bláu og rauðu hjartalaga viðvörunarborða

Leggðu þitt af mörkum

Stólpar ABC Barnahjálpar eru fyrirtæki sem leggja sitt af mörkum til að styrkja starfsemi samtakanna á Íslandi. Með reglulegum stuðningi gera þau félaginu kleift að sinna verkefnum sínum af fagmennsku. Öflugur rekstur er forsenda þess að hægt sé að ná til fleiri barna, fylgja verkefnum eftir af ábyrgð og tryggja að framlög nýtist sem best.


Fyrirtæki sem gerast Stólpar ABC Barnahjálpar verða hluti af hópi samstarfsaðila sem standa með starfi samtakanna til lengri tíma.


Þau fá:

  • Viðurkenningarskjal um samstarfið.
  • Heimild til að nota merki Stólpa ABC Barnahjálpar.
  • Birtingu á heimasíðu ABC Barnahjálpar.
  • Reglulegar upplýsingar um starfsemi og árangur.
  • Tækifæri til að kynnast verkefnum samtakanna og áhrifum starfsins.

Saman styrkjum við starfið sem gerir hjálparstarfið mögulegt

Tölum saman og finnum hvað hentar þínu
fyrirtæki best 

Tölum saman og finnum hvað hentar þínu fyrirtæki best

Af hverju styðja ABC barnahjálp?

Í heiminum í dag eru milljónir barna sem fá ekki tækifæri til menntunar vegna fátæktar. Fyrir mörg þeirra snýst daglegt líf frekar um að finna mat eða vinna til að hjálpa fjölskyldunni en að sitja í skólastofu.


ABC barnahjálp vinnur að því að breyta þessu.


Með stuðningi styrktaraðila getum við hjálpað börnum að komast í skóla, læra nýja færni og skapa sér betri framtíð. Menntun er eitt öflugasta tækið til að rjúfa hring fátæktar – ekki aðeins fyrir barnið sjálft heldur fyrir fjölskyldu þess og samfélagið í kring.


Þegar barn fær menntun opnast nýir möguleikar.

Það getur fundið sér atvinnu, byggt upp sjálfstætt líf og lagt sitt af mörkum til samfélagsins.


Þess vegna skiptir stuðningur þinn máli.