News

by Hrönn ABC 24 August 2026
FRÁBÆR ÁRANGUR UM HELGINA Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram laugardaginn 22. ágúst og átti ABC Barnahjálp frábæran hóp hlaupara sem lagði starfinu lið. Alls söfnuðust 3.864.811 krónur frá 336 aðilum til styrktar ABC barnastarfi. Sérstaklega ber að nefna Guðjón Norðfjörð, sem hljóp heilt maraþon og safnaði 2.828.745 kr. Söfnun hans tengist uppbyggingu nýrrar heilbrigðisþjónustu við ABC-skólann í Bobo-Dioulasso, sem mun bera nafnið Arna Heilbrigðisþjónusta, til minningar um eiginkonu hans, Örnu Hansen. Synir þeirra, Nökkvi og Ísak, hlupu einnig ásamt vini sínum Össa til stuðnings verkefninu. Fleiri lögðu ABC lið í hlaupinu, þar á meðal Sigurleif Sigurðardóttir, Ívar Ísak Guðjónsson, Jón Sverrir Friðriksson og Milla Rautiainen, auk annarra sem völdu að hlaupa fyrir ABC Barnahjálp. Heilsugæslan Arna mun þjóna bæði börnum ABC-skólans og íbúum nærliggjandi samfélags og bæta aðgengi þeirra að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Við færum öllum hlaupurunum okkar, þeim 336 aðilum sem styrktu söfnunina og öllum þeim sem hvöttu hlauparana áfram okkar innilegustu þakkir. Hvert skref og hvert áheit skiptir máli.
17 August 2026
Guðjón Norðfjörð hyggst hlaupa heilt maraþon til styrktar uppbyggingu heilbrigðisþjónustu við ABC-skólann í Bobo-Dioulasso í Búrkína Fasó. Þjónustan mun nýtast bæði börnum í skólanum og íbúum hverfisins. Uppbyggingin er þegar hafin og segir Guðjón tæpar tvær milljónir króna hafa safnast. Áætlað er að um sjö milljónir króna þurfi til að koma aðstöðunni upp en að því loknu þarf að finna styrktaraðila til að styðja við reksturinn. Heilbrigðisþjónustan mun bera nafnið Arna Heilbrigðisþjónusta, til minningar um Örnu Hansen, eiginkonu Guðjóns. Mikil hlaupafjölskylda Í samtali við mbl.is segist Guðjón hafa stundað langhlaup í mörg ár. Hann hefur hlaupið nokkur heil maraþon og mörg hálfmaraþon auk þess að hafa lokið nokkrum hálfum járnkörlum og tveimur heilum. Í júlí hljóp hann jafnframt 55 kílómetra Laugavegshlaupið og þá í þriðja skiptið. Langhlaup og þríþrautir hafa raunar lengi verið sameiginlegt áhugamál hjá fjölskyldunni. Árið 2022 tók fjölskyldan þátt í járnkarli á Ítalíu þar sem Guðjón, börn hans Ísak, Nökkvi og Ísold og tengdasonurinn Sveinn Þráinn Guðmundsson luku heilum járnkarli og Arna Hansen, eiginkona Guðjóns, lauk hálfum.
Maður brosandi í barong með litlum fána á fjölmennum viðburði innanhúss
9 June 2026
Með 15 ára stuðningi ABC barnahjálpar lauk Kenneth BSc í afbrotafræði og stóðst löggildingarpróf. Nú stefnir hann á starf hjá Tri-Bureau á Filippseyjum.
Útskrifaður í svörtum kjól með gulum stola og orðu á gráum bakgrunni í vinnustofu
9 June 2026
Með stuðningi ABC barnahjálpar lauk Stephenson háskólanámi með heiðri og er nú stjórnandi hjá McDonald's. Lestu innblásna sögu hans um þrautseigju.
Kona brosir við vinnuborð í fataverkstæði, heldur á bláu efni með saumaborðum og verkamönnum í bakgrunni.
9 June 2026
Melena ólst upp í fátækt en með stuðningi Home of Peace lauk hún hjúkrunarnámi og starfar nú sem hjúkrunarfræðingur. Lestu innblásna sögu hennar.
Andlitsmynd af manneskju í gulum bol og svörtum trefil á gullnum bakgrunni.
9 June 2026
Ribka Boota axlaði mikla ábyrgð sem elsta systkini sjö barna en lét ekki mótlæti stoppa sig. Í dag er hún kennari og fyrirmynd fyrir aðra.
Andlitsmynd af manneskju í hvítum höfuðklút og röndóttri skyrtu, snúið fram á við með hlutlausu svipbrigði
9 June 2026
Bano lauk námi við Rasta Brick Kiln School og kennir nú 1. bekk á sama stað. Saga hennar um menntun, trú og þrautseigju er innblástur fyrir aðra.
Maður í svörtum útskriftarkjól og húfu með gulllituðu belti stendur upp við múrsteinsvegg.
5 June 2026
Fjórir fyrrverandi nemendur luku starfs- og færniþjálfun á vegum International Youth Fellowship og eru nú betur búin undir nám og vinnumarkað.
Fólk að nota skrifborðsskanna á rauðu borði í látlausu skrifstofuherbergi
5 June 2026
Læknar og hjúkrunarfræðingar frá United Christian Hospital buðu upp á heilsufarsskoðanir, blóðþrýstingsmælingar og lyf fyrir nemendur og fjölskyldur í Lahore.
Kona situr á gólfinu við hliðina á saumavél, efni og skál í einföldu herbergi
5 June 2026
Rimsha Asif, 18 ára frá Pakistan, lærði saumaskap með stuðningi ABC Barnahjálpar. Nú getur hún unnið heima og stutt fjölskyldu sína til betri framtíðar.
Kona saumar á gamalli saumavél við hliðina á efni og hálfkláraðri flík á gólfinu.
5 June 2026
Saga Rimshu, 18 ára stúlku frá Sheikhupura, sýnir hvernig menntun og saumaskóli breyta lífi.
Lítil tölvuver með borðum, svörtum stólum, skjáborðum og glugga með gluggatjöldum.
5 June 2026
Tölvukennsla hjá MCE í Kenía eflir stafræna færni, sjálfstraust og fjármálalæsi nemenda og undirbýr þau fyrir nám og framtíðarstörf.
Nemendur í fjólubláum batikbúningum sitja við skrifborð í kennslustofu og snúa að myndavélinni.
8 May 2026
Saumþjálfun hjá Home of Peace í Bangladesh veitir nemendum mikilvæga færni sem eykur sjálfstæði, styrkir framtíðarmöguleika og opnar leiðir til atvinnu.