Flóð í pakistan

Táknmynd af bláu og rauðu hjartalaga viðvörunarborða

GJöf sem gefur líf

Fyrir 2500 kr. gefur þú fjölskyldu nauðsynlegan mat í 1 mánuð.



Miklar rigningar og flóð hafa stöðvað vinnu í múrsteinaverksmiðjum í Sheikhupura í Pakistan. 178 fjölskyldur barna sem stunda nám við Rasta-skóla ABC eru nú án reglulegra tekna, en foreldrarnir lifa flestir af daglaunavinnu við múrsteinsgerð. 

ABC barnahjálp hefur því hafið neyðarsöfnun til að útvega fjölskyldunum einfaldar matarpakkningar með nauðsynlegustu matvælum á meðan ástandið varir.

Fjölskyldurnar eiga litla sem enga fjárhagslega varasjóði og þegar vinnan stöðvast verður matur fljótt af skornum skammti.

Með þínu framlagi getum við hjálpað fjölskyldu að eiga mat á borðinu á meðan hún bíður þess að geta hafið vinnu á ný.